Agricultural University of Iceland
Ásókn asparglyttu (Phratora vitellinae L.) í mismunandi klóna Alaskaaspar (Populus balsamifera L. ssp. trichocarpa) Skaðsemi, útbreiðsla og lífsferill asparglyttu á Íslandi
Abstract
dc:description.abstractFrá árinu 2005 hefur asparglytta Phratora vitellinae L. (Coleoptera: Chrysomelidae) dreift sér hratt um landið og valdið skaða á bæði aspar- (Populus ssp.) og víðitegundum (Salix ssp.). Fyrir áframhaldandi ræktun á Alaskaösp (Populus balsamifera L. ssp. trichocarpa (Torr. & Gray) Brayshaw) er mikilvægt að afla upplýsinga um þennan skaðvald. Meginmarkmið verkefnisins var að meta líkur á skemmdum af völdum asparglyttu á mismunandi klónum Alaskaaspar. Einnig að ákvarða útbreiðslu, skaðsemi og fjölda kynslóða asparglyttu á Íslandi. Í áttilraun í rannsóknastofu voru bornir saman tíu klónar af Alaskaösp með tilliti til asparglyttuskemmda. Skemmdir á sömu klónum voru einnig metnar í útitilraun með eins árs gömlum plöntum og í klónatilraunum. Upplýsingum um útbreiðslu og skaðsemi var safnað með spurningakönnun og vettvangsferð um landið. Árlegur kynslóðafjöldi asparglyttu var ákvarðaður með vöktun á tveimur stöðum. Niðurstöður sýndu marktæk áhrif klóna á skemmdir í áttilraun í rannsóknastofu. Mestar líkur voru á að klónarnir Keisari (61%), S23 (60%) og R2 (57%) væru skemmdir, en minnstar líkur á að klónarnir Hve16 (20%), S19 (21%) og Sv10 (25%) væru skemmdir. Marktækur munur var á milli þessara tveggja hópa. Niðurstöður úr klónatilraun og útitilraun sýndu einnig marktæk áhrif klóna á skemmdir. Þar voru mestar skemmdir á Keisara og minnstar á Hve16 og Sv10. Niðurstöður fyrir aðra klóna bentu hinsvegar til þess að hýsilval í rannsóknastofu endurspegli ekki fyllilega hýsilval í náttúrunni. Vöktun á lífsferli asparglyttu sýndi að hún kemur upp einni kynslóð á ári hérlendis. Niðurstöður þessarar rannsóknar veita nýjar upplýsingar sem geta nýst við ræktun Alaskaaspar hér á landi.
Author and committee
dc:creator, dc:contributor.*- Author dc:creator
-
- Kristín Sveiney Baldursdóttir 1982-
- Contributors dc:contributor
-
- Landbúnaðarháskóli Íslands
Subjects
dc:subject × 10Rights
- Language dc:language.iso
- is
Identifiers
dc:identifier.*- Handle dc:identifier.uri
- http://hdl.handle.net/1946/44379
- OAI identifier oai:identifier
- oai:skemman.is:1946/44379