Back to results

Agricultural University of Iceland

Er litið framhjá fjölbreytni innan tegunda í íslenskum fjöruvistkerfum?

Abstract

dc:description.abstract

Eitt meginviðfangsefni vistfræði samtímans er að skrá og spá fyrir um viðbrögð tegunda við umhverfisbreytingum. Vandinn hefur verið sá að nálganir vistfræðinga um viðbrögð lífvera við breytingum í umhverfi sínu, eru oft byggðar á hugmyndafræði þar sem litið er á tegundir sem einsleitar lífeðlisfræðilegar einingar. Fjölbreytni innan tegunda, getur stuðlað að þrautseigju vistkerfa, stöðugleika innan stofna, og eykur möguleika á þróun lífverusamfélaga (e. dynamics of the eco-development community). Að taka ekki með inn í myndina mismunandi staðbundin afbrigði tegunda, leiðir til ónákvæmni í viðbragðsspám sem verður til þess að verndaráætlanir verða ómarkvissari og gætu leitt til alvarlegrar stöðu mikilvægra vistkerfa. Í þessu verkefni voru gögn úr vistgerðaflokkun Náttúrufræðistofnunar Íslands um fjöruvist og dreifingu fjörulífvera, skoðuð og borin saman við gögn um umhverfisþætti sem hafa áhrif á fjöruvist lífvera. Niðurstöður voru bornar saman við erlendar rannsóknir á fjölbreytileika innan tegunda fjörulífvera. Niðurstöður verkefnisins benda til þess að fjölbreytni innan tegunda í íslenskum fjöruvistkerfum sé til staðar. Vísbendingar þess efnis kalla á frekari rannsóknir á fjölbreytni innan tegunda og mögulega þarf að uppfæra verndaráætlanir vistkerfa hér við land með tilliti til þessa. Þannig geti Íslendingar staðið enn betur við alþjóðlegar skuldbindingar sínar hvað varðar sjálfbæra nýtingu og verndun viðkvæmra vistkerfa hér við land.

Author and committee

dc:creator, dc:contributor.*
Author dc:creator
  • Marinó Muggur Þorbjarnarson 1986-
Contributors dc:contributor
  • Landbúnaðarháskóli Íslands

Subjects

dc:subject × 7

Rights

Language dc:language.iso
is

Identifiers

dc:identifier.*
Handle dc:identifier.uri
http://hdl.handle.net/1946/43256
OAI identifier oai:identifier
oai:skemman.is:1946/43256

Chain of custody

source
Harvested from
Agricultural University of Iceland
Base URL
skemman.is/oai/request
Last updated
2026-07-27
Source record
OAI-PMH GetRecord
citation

Marinó Muggur Þorbjarnarson 1986-. Er litið framhjá fjölbreytni innan tegunda í íslenskum fjöruvistkerfum?. 2023. http://hdl.handle.net/1946/43256