Back to results

Agricultural University of Iceland

Meðhöndlun plastúrgangs í átt að hringrásarhagkerfi

Abstract

dc:description.abstract

Plast er órjúfanlegur hluti af nútímanum vegna nytsemi þess. Plastframleiðsla heldur áfram að aukast, plastúrgangur safnast upp, hann brotnar niður í smáagnir sem kallast örplast, veldur mengun í náttúru og er ógn við lífríki. Meðhöndlun plastúrgangs er áskorun sem þjóðir heimsins standa fyrir. Magn plastúrgangs, margar tegundir plasts sem til eru og gera flokkun þess erfiða, mismunandi hæfni plastefna til endurvinnslu og mismunandi aðstæður í einu landi til annars eru meðal ástæðna sem gera meðhöndlun og endurvinnslu plastúrgangs vandasamt verk. Vandamál sem þessi bjóða upp á ástæður fyrir flutning og förgun plastúrgangs á milli landa. Æskilegt væri að líta á plastúrgang sem auðlind og koma honum í hringrásarhagkerfi sem næst uppruna, sem byggist á því að hann sé meðhöndlaður á réttan hátt þannig að bæði hráefni og orka tapist ekki. Markviss söfnun, flokkun, endurnýting og hágæða endurvinnsla plastúrgangs eru mikilvæg skref til þess að koma plastúrgangi í hringrásarhagkerfi. Þessi ritgerð var skrifuð með þeim tilgangi að skoða mismunandi aðferðir á meðhöndlun plastúrgangs. Engin ein niðurstaða fæst úr þessu verkefni, en velt er vöngum yfir þeim viðbrögðum sem við hér heima á Íslandi og lönd í Evrópusambandinu hafa komið með í kjölfar vandamála plastúrgangs og hvernig stefnt er í átt að hringrásarhagkerfi.

Author and committee

dc:creator, dc:contributor.*
Author dc:creator
  • Telma Valey Jóhannesdóttir 1988-
Contributors dc:contributor
  • Landbúnaðarháskóli Íslands

Subjects

dc:subject × 6

Rights

Language dc:language.iso
is

Identifiers

dc:identifier.*
Handle dc:identifier.uri
http://hdl.handle.net/1946/41645
OAI identifier oai:identifier
oai:skemman.is:1946/41645

Chain of custody

source
Harvested from
Agricultural University of Iceland
Base URL
skemman.is/oai/request
Last updated
2026-07-27
Source record
OAI-PMH GetRecord
citation

Telma Valey Jóhannesdóttir 1988-. Meðhöndlun plastúrgangs í átt að hringrásarhagkerfi. 2022. http://hdl.handle.net/1946/41645