Back to results

Agricultural University of Iceland

Innleiðing blágrænna ofanvatnslausna í grónum hverfum

Abstract

dc:description.abstract

Á undanförnum árum hafa æ fleiri borgir víða um heim upplifað flóð af völdum aukinnar úrkomu. Búast má við að úrkoma aukist enn frekar á komandi áratugum í kjölfar loftslagsbreytinga og tíðni flóða mun líklega aukast. Náttúrulegar ofanvatnslausnir geta létt á fráveitukerfum og aukið lífsgæði í borgum með meðhöndlun vatns ofanjarðar. Nú er stefna Reykjavíkurborgar að þétta byggð en jafnframt að auka líffræðilegan fjölbreytileika í borginni. Blágrænum ofanvatnslausnum hefur þess vegna verið komið fyrir í nýjum hverfum, en þörf er á að skoða hvernig hægt sé að auka lífsgæði í grónum hverfum sem voru byggð með bílinn í forgangi á sínum tíma. Verkefni þetta felst í því að skoða erlendar fyrirmyndir og hvernig best sé að koma blágrænum ofanvatnslausnum fyrir í eldri hverfum borgarinnar. Gerðar eru hönnunartillögur á völdu svæði í Seljahverfi, sem sýndar eru myndrænt. Niðurstöður verkefnisins sýna hvernig hægt er að koma náttúrulegum ofanvatnslausnum fyrir í þegar byggðu hverfi á einfaldan máta og að skapa í leiðinni fallegt umhverfi í mannlegum skala.

Author and committee

dc:creator, dc:contributor.*
Author dc:creator
  • Steinunn Baldursdóttir 1988-
Contributors dc:contributor
  • Landbúnaðarháskóli Íslands

Subjects

dc:subject × 6

Rights

Language dc:language.iso
is

Identifiers

dc:identifier.*
Handle dc:identifier.uri
http://hdl.handle.net/1946/41626
OAI identifier oai:identifier
oai:skemman.is:1946/41626

Chain of custody

source
Harvested from
Agricultural University of Iceland
Base URL
skemman.is/oai/request
Last updated
2026-07-27
Source record
OAI-PMH GetRecord
citation

Steinunn Baldursdóttir 1988-. Innleiðing blágrænna ofanvatnslausna í grónum hverfum. 2022. http://hdl.handle.net/1946/41626