Back to results

Agricultural University of Iceland

Aðferðir bænda við uppeldi bónuslamba

Abstract

dc:description.abstract

Tilurð verkefnisins varð í samstarfi við Sigríði Bjarnadóttur þar sem okkur fannst þetta áhugavert efni til þess að kanna. Mismunandi aðferðir eru við uppeldi bónuslamba og ekki hefur mikið verið fjallað um þetta efni á Íslandi. Verkefnið getur verið gott fyrir bændur og aðra sem umgangast sauðfé og vilja fræðast um viðfangsefnið. Í verkefninu er sagt frá mismunandi aðferðum við val á bónuslömbum sem og aðferðir við fóðrun. Margir bændur enda með bónuslömb eftir sauðburð, hvort sem það er markvisst gert eða ekki og misvel gengur að ala þessi lömb upp. Verkefnið var framkvæmt með því að tala við átta bændur, ýmist með því að fara í heimsókn til þeirra eða í gegnum fjarskiptaforriti. Í viðtölunum voru lagðar fram spurningar fyrir bændurna sem þeir svöruðu eftir bestu getu. Bændurnir lýstu aðferðum við val á bónuslömbum, aðferðum við mjólkurfóðrun, sumarbeit, haustbeit og fleira. Einnig voru fengnar sláturupplýsingar bónuslambanna sem og sláturupplýsingar annarra lamba á búunum. Árið 2017 var gefin út BS.c ritgerð þar sem framkvæmd var rannsókn þar sem annað lambið undan tvílembdum veturgömlum ám var tekið undan og fóðrað á gervimjólk á meðan hitt gekk undir móður sinni. Lömbunum sem voru tekin undan var skipt í tvo hópa, annar var fóðraður með gervimjólk í fimm vikur og hinn í sjö vikur. Niðurstöður þeirrar rannsóknar var að ekki var marktækur munur í fallþunga á milli lambahópanna. Markmið verkefnisins var að fræðast um mismunandi aðferðir við uppeldi bónuslamba, meta hugsanlega hvaða aðferðir henta betur en aðrar. Eins getur verið að það sem hentar vel eða tekst vel hjá einum, hentar ekki öðrum. Samanburður var gerður á fallþunga bónuslambanna á búinu og fallþunga annarra lamba búsins. Niðurstöður verkefnisins lýsa sér þannig að mismunandi aðferðir eru notaðar við uppeldi bónuslamba. Af þeim átta bændum sem tóku þátt í verkefninu þá voru fjórir bæir með fóðurkál fyrir bónuslömbin og voru þau lömb þyngri en lömbin sem ekki fengu fóðurkál. Þrjár mismunandi týpur af mjólkurfóðrunartækjum voru á notaðar á bæunum í verkefninu, þá aðallega fötufóstrur og Heatwave fóstrur en einn bær notaði alfarið túttufötur.

Author and committee

dc:creator, dc:contributor.*
Author dc:creator
  • Hrafnhildur K Jóhannsdóttir 2000-
Contributors dc:contributor
  • Landbúnaðarháskóli Íslands

Subjects

dc:subject × 9

Rights

Language dc:language.iso
is

Identifiers

dc:identifier.*
Handle dc:identifier.uri
http://hdl.handle.net/1946/41597
OAI identifier oai:identifier
oai:skemman.is:1946/41597

Chain of custody

source
Harvested from
Agricultural University of Iceland
Base URL
skemman.is/oai/request
Last updated
2026-07-27
Source record
OAI-PMH GetRecord
citation

Hrafnhildur K Jóhannsdóttir 2000-. Aðferðir bænda við uppeldi bónuslamba. 2022. http://hdl.handle.net/1946/41597