Back to results

Agricultural University of Iceland

Cultivation of microalgae on fishery effluent in industrial environment

Abstract

dc:description.abstract

Eftir mikinn vöxt á síðustu árum stendur fiskeldi nú frami fyrir því að auðlindir geti orðið takmarkandi fyrir frekari vöxt - viltur fiskur sem notaður er í fóður er ekki óendanleg auðlind. Plöntufóður ræktað á landi gæti komið í stað fisks, en það hefur þó sína ókosti s.s. samkeppni um land við matvælaframleiðslu til manneldis og þá þyrfti eldisfiskur á fæðubótarefnum að halda til að ekki dragi úr Omega-3 innihaldi hans. Úrgangur frá fiskeldi hefur neikvæð umhverfisáhrif ef hann fer ómeðhöndlaður út í náttúruna. Hátt köfnunarefnis- (N) og fosfór- (P) innihald úrgangs getur valdið óstöðugleika og mengað vistkerfi jafnvel þó þau séu í góðu jafnvægi. Hins vegar, er úrgangurinn vannýtt auðlind sem hægt væri að nýta til ræktunar á örþörungum. Fræðilega séð geta örþörungar breytt 88% og 99% af losuðum N og P í fjölnota lífmassa. Hins vegar er áköf smáþörungarækt orkufrek (hefur mikið rafmagnsspor) - allt að 80% af fótspori af framleiðslu lífmassa á rekstrarstigi má rekja til notkunar á raforku. Lágtækniuppsetning getur haldið kolefnisfótspori lágu eða jafnvel neikvæðu og komið í veg fyrir þörf á mótvægis aðgerðum en þó framleitt nægjanlegan lífmassa. Til þess að prófa þessa hugmynd var sett upp örþörungarækt í hálf-stríðeldi með minni ræktunarákefð þar sem byggt var á nýtingu CO2 úr andrúmslofti og minna orkuframlagi. Athugunin hefur sýnt fram á að hægt er að nýta og endurnýta frárennsli frá fiskeldi ásamt því að lágmarka áhrif þess á villta fiskstofna og draga úr kolefnisspori þess. Strærri framleiðslu er þörf til að sanna efnahagslega ávinningu, samhliða því að svara henni verður að hafa í huga mögulega umhverfishvata ásamt öðrum ávinningi sem getur fylgt þróun fiskeldis.

Author and committee

dc:creator, dc:contributor.*
Author dc:creator
  • Pavle Estrajher 1974-
Contributors dc:contributor
  • Landbúnaðarháskóli Íslands

Subjects

dc:subject × 5

Rights

Language dc:language.iso
en

Identifiers

dc:identifier.*
Handle dc:identifier.uri
http://hdl.handle.net/1946/41579
OAI identifier oai:identifier
oai:skemman.is:1946/41579

Chain of custody

source
Harvested from
Agricultural University of Iceland
Base URL
skemman.is/oai/request
Last updated
2026-07-27
Source record
OAI-PMH GetRecord
citation

Pavle Estrajher 1974-. Cultivation of microalgae on fishery effluent in industrial environment. 2022. http://hdl.handle.net/1946/41579