Back to results

Agricultural University of Iceland

Beittar uppgræðslur á hálendi Íslands - reynsla bænda, aðferðir og árangur

Abstract

dc:description.abstract

Undanfarna áratugi hefur uppgræðsla verið stunduð um allt land við mismunandi aðstæður. Bændur vinna að því uppgræðslustarfi að stórum hluta, bæði á heimalöndum og í afréttum, í samvinnu við Landgræðsluna. Markmið þessa verkefnis var að afla þekkingar frá bændum um beittar uppgræðslur á hálendi Íslands, kynnast sjónarmiðum þeirra, aðferðum og árangri. Gerð var tilviksrannsókn sem byggði á eftirfarandi gagnaöflun: Viðtöl voru tekin við valinn hóp einstaklinga sem þekktu vel til á hverju svæði og ásamt þeim farið í vettvangsskoðun um uppgræðslurnar. Farið var um afrétti í Suður-Þingeyjarsýslu, Árnessýslu, Rangárvallasýslu og Vestur-Skaftafellssýslu, alls tólf svæði. Reitir voru gróðurgreindir, teknar myndir og saga staðar skráð. Frekari gagna var aflað þegar þurfa þótti, þar til nóg efni lá fyrir til að setja fram niðurstöður. Markmið bænda með uppgræðslustarfi eru að uppfylla skilyrði gæðastýringar í sauðfjárrækt, að ná árangri við uppgræðslu lands, að græða land undir beit og beitarstjórnun. Aðgengi, kostnaður og væntanlegur árangur ráða mestu um hvaða svæði eru tekin til uppgræðslu. Dreifing áburðar er helsta úrræðið við uppgræðslurnar. Sums staðar þarf að nota fræ en til að það komi að gagni þarf að fella það niður. Heyi er sums staðar dreift í börð og við aðrar mjög erfiðar aðstæður. Árangurinn sem bændur stefna að með uppgræðslu er full gróðurþekja sem getur lifað hjálparlaust. Við uppgræðslu barða og rofjaðra er stefnt að því að sár lokist og grói upp, rof hætti og gróður þeki moldir og börð. Bændur vinna að uppgræðslum á hverjum stað þar til viðunandi árangri er náð. Erfitt að meta að ákveðnar aðgerðir leiði til ákveðins árangurs en samspil uppgræðsluaðgerðanna, landsins og umhverfisins ræður hvernig uppgræðslurnar taka við sér. Landið og umhverfið ráða hins vegar mestu um hvaða gróður lifir til langframa og hvernig gróðurfar þróast eftir að uppgræðslustarfinu telst lokið. Yfirleitt ná uppgræðslurnar þokkalegri gróðurþekju á fáeinum árum, sem síðan þróast yfir í náttúrulegar vistgerðir með tímanum og falla vel að umhverfi. Alla jafna hefur verið mjög gróðurlítið fyrir á þessum stöðum þannig að uppgræðslurnar hljóta að teljast árangursríkar. Árangur af uppgræðslustarfi bænda á hálendinu er góður og ekki lakari en á friðuðum uppgræðslum, enda telja bændur að beit og uppgræðslur fari vel saman. Undanfarna áratugi hefur gróður á afréttum verið í framför með þeirri sauðfjárbeit sem þar hefur verið. Bóndinn nýtir afrétt sinn til beitar og kynnist náttúru landsins á þann hátt. Þekking heimamannsins kemur til vegna nýtingarinnar. Sú þekking er bóndanum nauðsynleg og leggur grunninn að búmennsku sem kemur báðum til góða, bóndanum og náttúrunni sem hann býr í.

Author and committee

dc:creator, dc:contributor.*
Author dc:creator
  • Sigríður Jónsdóttir 1964-
Contributors dc:contributor
  • Landbúnaðarháskóli Íslands

Subjects

dc:subject × 10

Rights

Language dc:language.iso
is

Identifiers

dc:identifier.*
Handle dc:identifier.uri
http://hdl.handle.net/1946/40102
OAI identifier oai:identifier
oai:skemman.is:1946/40102

Chain of custody

source
Harvested from
Agricultural University of Iceland
Base URL
skemman.is/oai/request
Last updated
2026-07-27
Source record
OAI-PMH GetRecord
citation

Sigríður Jónsdóttir 1964-. Beittar uppgræðslur á hálendi Íslands - reynsla bænda, aðferðir og árangur. 2021. http://hdl.handle.net/1946/40102