Back to results

Agricultural University of Iceland

Aldraðir og útivera. Útivistarsvæði við dvalarheimilið Dalbæ á Dalvík

Abstract

dc:description.abstract

Í nútíma samfélagi er mikið talað um þætti eins og umhverfi og útiveru. Lögð er áhersla á að útivera og hreyfing sé mikilvæg fyrir heilsu og vellíðan. Þetta á við um alla aldurshópa, allt frá börnum í leikskóla að öldruðum á dvalarheimilum og sýna rannsóknir fram á að útivera skiptir miklu máli varðandi andlega og líkamlega líðan. Umhverfið er ákveðin umgjörð utan um útivist og hefur náttúrulegt umhverfi oft mestu áhrifin á vellíðan. Græn svæði í borgum og bæjum eru því mikilvægur partur þegar kemur að skipulagi svæða. Huga þarf því að mörgu í hönnun á útivistarsvæðum almennt sem varðar notkun og nýtingu. Stofnanir eins og til dæmis dvalarheimili eru fyrir fólk sem komið er á efri ár, fólkið er allra jafna misjafnt til heilsunnar en hefur samt gaman og gott af útiveru eins og aðrir. Mörg dvalarheimili hafa á síðustu árum verið að breytast í hjúkrunarheimili, með fleira veikt fólk, sem þarf meiri hreyfingu og þjálfun. Í þessu verkefni verður sjónum beint að útivist aldraðra út frá umhverfi og lýðheilsu, og þá sérstaklega að öldruðum sem búa á dvalarheimilum. En hvernig er staðan með aðstöðu til útiveru og hvernig þurfa útivistarsvæði við dvalarheimili að vera ? Þeim spurningum verður leitast við að svara í þessu verkefni. Dvalarheimilið Dalbær á Dalvík er sjálfseignarstofnun sem rekin er með styrkjum frá ríki og bæ. Stór lóð er í kringum heimilið og aðstaða til útiveru svipuð og almennt er við dvalarheimili. Lóðin hefur mikið upp á að bjóða, þar sem hún liggur vel hvað varðar skjól og landslag, með gott útsýni yfir byggðina og fjöllin í kring. Markmið þessa verkefnis er að skoða hvernig hægt sé að bæta aðstöðu til útivistar við dvalarheimilið svo áhugi til útiveru verði meiri. Hönnunarforsendur eru unnar út frá greiningunni á svæðinu. Hönnunartillagan er byggð upp á því að gera gott og fjölbreytt útivistarsvæði sem hentar öldruðum en nýtist jafnfram sem almenningsgarður. Einnig voru hugmyndir íbúa teknar með í tillöguna, sem vissulega skipta miklu máli við hönnun á slíkum svæðum. Með hönnunartillögunni verður þannig leitast við að skapa aðstæður sem gefa öllum meiri gleði og tilbreytingu inn í daglegt líf. Þó þessi hönnunartillaga sé miðuð sérstaklega við dvalaheimilið Dalbæ á Dalvík, þá væri hægt að heimfæra hana við flest önnur dvalarheimili á landinu.

Author and committee

dc:creator, dc:contributor.*
Author dc:creator
  • Jón Arnar Sverrisson 1964-
Contributors dc:contributor
  • Landbúnaðarháskóli Íslands

Subjects

dc:subject × 9

Rights

Language dc:language.iso
is

Identifiers

dc:identifier.*
Handle dc:identifier.uri
http://hdl.handle.net/1946/38843
OAI identifier oai:identifier
oai:skemman.is:1946/38843

Chain of custody

source
Harvested from
Agricultural University of Iceland
Base URL
skemman.is/oai/request
Last updated
2026-07-27
Source record
OAI-PMH GetRecord
citation

Jón Arnar Sverrisson 1964-. Aldraðir og útivera. Útivistarsvæði við dvalarheimilið Dalbæ á Dalvík. 2021. http://hdl.handle.net/1946/38843