Back to results

Agricultural University of Iceland

Frjósemi íslenskra hrossa

Abstract

dc:description.abstract

Í þessari ritgerð er gerð úttekt á fyljunarskýrslum úr skýrsluhaldskerfum fyrir íslensk hross og markmiðið er að leggja mat á stöðu frjósemi íslenskra hrossa, gæði skýrsluhaldsins og leita lausna til að bæta skráningu og nýtingu skráningar til að fylgjast betur með þessum grundvallareiginleika allrar ræktunar. Fengin voru gögn úr skýrsluhaldskerfinu WorldFeng og úr sænska gagnagrunninum HESTUR. Gögnin úr WorldFeng náðu til 28.424 hryssna og þeirra afkvæma sem þær áttu árin 1990-2018. Gögnin úr HESTUR náðu til 6.909 fyljana íslenskra hryssna í Svíþjóð árin 2015-2020. Lýsandi tölfræði var reiknuð á fanghlutfall hryssna í báðum gangasöfnum og hryssur sem höfðu ekki nógu nákvæma skráningu voru ekki teknar með í gagnaúrvinnslu. Marktækni áhrifaþátta var reiknað í tölfræðiforritunum SAS (Statistical Analysis System) og R (Rstudio). Til gamans var kynjahlutfall fæddra folalda skoðað í íslensku gögnunum. Þeir frjósemisþættir sem hægt var að skoða út frá uppgefnum gögnum voru; fjöldi folalda á hverja hryssu á líftíma hennar, aldur við fyrstu köstun, aldur við síðustu köstun og áhrif af aldri hryssu og stóðhests, kynbótamats, skyldleikaræktarstuðuls, fyljunaraðferðar og árs á fanghlutfall og afdrif fyls. Út frá þessum gögnum var hægt að leggja mat á áhrifaþætti sem snerta frjósemi hryssnanna, svo sem aðaleinkunn í kynbótadómi, aðaleinkunn kynbótamats, áhrif aldurs mera við fyrstu köstun á fjölda afkvæma og endingu í ræktun, meðalaldur hryssna sem kasta á ári. Meðalaldur hryssna sem kasta áhverju ári reyndist vera rúmlega 12,5 ár. Hryssur með góðan kynbótadóm eru að jafnaði yngri en aðrar hryssur þegar þær eru settar í ræktun en eru líka eldri en aðrar hryssur við fæðingu síðasta afkvæmis. Aldur hefur marktæk áhrif á fanghlutfall og afrakstur (fæðing lifandi afkvæmis, fósturlát o.fl.). Þá hafði skyldleikaræktarstuðull neikvæð áhrif á hvort hryssa festi fang eða ekki. Fyljunarár hefur marktæk áhrif á fyljun og tíðni fósturláts hjá hryssum. Kynjahlutfall fæddra folalda er ekki jafnt.

Author and committee

dc:creator, dc:contributor.*
Author dc:creator
  • Sigurður Anton Pétursson 1999-
Contributors dc:contributor
  • Landbúnaðarháskóli Íslands

Subjects

dc:subject × 5

Rights

Language dc:language.iso
is

Identifiers

dc:identifier.*
Handle dc:identifier.uri
http://hdl.handle.net/1946/38840
OAI identifier oai:identifier
oai:skemman.is:1946/38840

Chain of custody

source
Harvested from
Agricultural University of Iceland
Base URL
skemman.is/oai/request
Last updated
2026-07-27
Source record
OAI-PMH GetRecord
citation

Sigurður Anton Pétursson 1999-. Frjósemi íslenskra hrossa. 2021. http://hdl.handle.net/1946/38840