Agricultural University of Iceland
Erfðabreytileiki KIT-gensins og tengsl við litafar í íslensku sauðfé
Abstract
dc:description.abstractEitt af því sem einkennir íslenska sauðfjárkynið er litafjölbreytileiki. Litafar ræðst af flóknu samspili fjölmargra gena og er KIT-genið eitt þeirra. Rannsóknir hafa sýnt fram á tengsl KIT við litafar meðal annars í svínum, nautgripum, hrossum og refum. Rannsóknir á tengslum KIT við litafar í sauðfé eru misvísandi þar sem sumar rannsóknir benda til að genið geti haft áhrif á litafar en aðrar að engin tengsl séu þar á milli. Í þessari rannsókn var markmiðið að greina hvort einhver breytileiki í KIT-geninu tengdist litafari í íslensku sauðfé. Úr sýnasafni Landbúnaðarháskóla Íslands voru 19 einstaklingar valdir út frá því að litafar hópsins væri sem fjölbreytilegast og erfðaefni þeirra raðgreint. Skoðaðar voru útraðir 10-13 og 17-21 í KIT-geninu og raðgreiningarniðurstöður bornar saman við Ramboullet Merino viðmiðunargen í forritinu Geneious Prime. Töluverður breytileiki fannst meðal annars einkirnabreytileiki (SNP), þriggja basa innsetning, auk eins basa úrfellingar og innsetningar. Breytingar fundust bæði í arfhreinum og arfblendnum einstaklingum. Þrátt fyrir þennan mikla breytileika sem fannst voru niðurstöður rannsóknarinnar þær að ekki væru bein tengsl á milli breytileika í útröðum 10-13 og 17-21 í KIT-geninu og litafars í íslensku sauðfé.
Author and committee
dc:creator, dc:contributor.*- Author dc:creator
-
- Salbjörg Ragna Sævarsdóttir 1991-
- Contributors dc:contributor
-
- Landbúnaðarháskóli Íslands
Subjects
dc:subject × 4Rights
- Language dc:language.iso
- is
Identifiers
dc:identifier.*- Handle dc:identifier.uri
- http://hdl.handle.net/1946/38817
- OAI identifier oai:identifier
- oai:skemman.is:1946/38817