Back to results

Agricultural University of Iceland

Stafafura (Pinus contorta) í Norðtunguskógi. Fræ: dreifing-magn-spírun

Abstract

dc:description.abstract

Liðin eru yfir 80 ár frá því að fyrstu stafafuru-fræin (Pinus contorta) voru flutt inn til Íslands frá Norður Ameríku og fyrstu plönturnar voru ræktaðar og gróðursettar hér á landi. Komið hefur í ljós að stafafura, einkum af kvæminu Skagway, er vel aðlöguð að aðstæðum hér á landi og lifir og vex almennt vel á rýru landi. Fyrsta heimildin sem ég fann um sjálfsáningu stafafuru hérlendis er frá árinu 1978. Í þessari rannsókn var athugað hvort stafafura í samfelldum skógi, þar sem ákveðnir lundir höfðu verið rjóðurfelldir, framleiddu nægt fræ til að geta staðið undir sjálfsáningu inn á föllnu reitina eftir skógarhöggið. Fræmagnið sem barst inn á rjóðurfelldan reit var einnig mælt yfir eitt ár. Að auki var metið hversu mikið af spírunarhæfu fræi væri í könglum áföstum greinum sem skildar voru eftir á skógarbotni eftir skógarhöggið. Að lokum var kannað hvort hitastig sem þeir næðu við þurrkun skipti máli fyrir hversu mikið spírunarhæfu og öflugu fræi losnaði úr þeim. Samkvæmt minni rannsókn var fræ á svæðinu og það var að dreifa sér inn á fellda reiti. Einnig var spírunarhæft fræ i könglum á skógarbotni, en mismikið eftir hversu langur tími var frá fellingu. Eftir þessa rannsókn dreg ég þá ályktun að það var sennilega ekki skortur á frædreifingu eða spírunarhæfu fræi sem gat losnað úr áföstum könglum á skógarbotni eftir skógarhöggið, sem var ástæða þess að endurnýjun tókst ekki í Norðtunguskógi. Þá standa eftir tveir mögulegir áhrifavaldar a) afrán á fræi/fræplöntum eða b) skortur á fræsetum sem henta til öruggrar spírunar. Þetta þarfnast frekari rannsókna, en ég tel þó að seinni kosturinn sé líklegri orsakavaldur. Þar af leiðir að nauðsynlegt er að skipuleggja inngrip (jarðvinnslu) í kjölfar skógarhöggs stafafuruskóga ef á að tryggja örugga endurnýjun þeirra með sjálfsáningu.

Author and committee

dc:creator, dc:contributor.*
Author dc:creator
  • Björk Kristjánsdóttir 1965-
Contributors dc:contributor
  • Landbúnaðarháskóli Íslands

Subjects

dc:subject × 6

Rights

Language dc:language.iso
is

Identifiers

dc:identifier.*
Handle dc:identifier.uri
http://hdl.handle.net/1946/38804
OAI identifier oai:identifier
oai:skemman.is:1946/38804

Chain of custody

source
Harvested from
Agricultural University of Iceland
Base URL
skemman.is/oai/request
Last updated
2026-07-27
Source record
OAI-PMH GetRecord
citation

Björk Kristjánsdóttir 1965-. Stafafura (Pinus contorta) í Norðtunguskógi. Fræ: dreifing-magn-spírun. 2021. http://hdl.handle.net/1946/38804