Back to results

Agricultural University of Iceland

Framtíðarmöguleikar í nýtingu seyru á Íslandi

Abstract

dc:description.abstract

Seyra er ákveðinn hluti af skólpi sem verður til við vinnslu fráveituvatns þegar vökvi og föst efni eru aðskilin með mismunandi aðferðum og það sem eftir stendur er seyra. Seyra er líffræðilega virk blanda og inniheldur mikið magn af lífrænum næringarefnum en henni geta einnig fylgt ólífræn efni. Í seyrunni eru ýmis næringarefni sem hægt er að nýta og væri synd að farga. Þó geta komið upp ýmis vandamál við endurnýtingu hennar. Í þessu verkefni er leitast við að komast að niðurstöðu um hvaða leiðir eru ákjósanlegastar til meðhöndlunar og notkunar á seyru á Íslandi og hvort það sé einhver framtíðarsýn varðand notkun hennar hér á landi. Farið er yfir helstu meðhöndlunar- og notkunarleiðir sem eru og hafa verið framkvæmdar og einnig tæknilegri notkunarleiðir sem sumar hverjar eru enn á þróunarstigi. Úr verkefninu fæst enginn ein ákveðin niðurstaða heldur er frekar reynt að meta kosti og galla út frá efnahagslegum, umhverfislegum og félagslegum sjónarmiðum.

Author and committee

dc:creator, dc:contributor.*
Author dc:creator
  • Kristín Eva Einarsdóttir 1994-
Contributors dc:contributor
  • Landbúnaðarháskóli Íslands

Subjects

dc:subject × 7

Rights

Language dc:language.iso
is

Identifiers

dc:identifier.*
Handle dc:identifier.uri
http://hdl.handle.net/1946/36067
OAI identifier oai:identifier
oai:skemman.is:1946/36067

Chain of custody

source
Harvested from
Agricultural University of Iceland
Base URL
skemman.is/oai/request
Last updated
2026-07-27
Source record
OAI-PMH GetRecord
citation

Kristín Eva Einarsdóttir 1994-. Framtíðarmöguleikar í nýtingu seyru á Íslandi. 2020. http://hdl.handle.net/1946/36067