Back to results

Agricultural University of Iceland

Samfélög mítla (Acari) og stökkmors (Collembola) í mismunandi gróðurframvindu, 20 árum eftir uppgræðslu á Geitasandi

Abstract

dc:description.abstract

Víða á Íslandi hefur ýmsum aðferðum verið beitt til að græða upp land og bæta virkni vistkerfa. Við mat á gildi uppgræðsluaðgerða hefur verið horft til fjölda eiginleika vistkerfa, þar á meðal þróunar gróðursamfélaga eða kolefnisbindingar. Undanfarin ár hefur nauðsyn þess að taka tillit til samfélaga jarðvegslífvera fyrir skilning okkar á virkni vistkerfa orðið augljósari, ekki síst samspili þeirra við samfélög ofanjarðar. Lítið er þó vitað um þróun samfélaga jarðvegsdýra eftir uppgræðslu. Til að meta gildi uppgræðslumeðferða á samfélög stökkmors og mítla, voru jarðvegssýni tekin úr reitum með mismunandi uppgræðslumeðferðum; grassáning, lúpínusáning, birki- og víðieyjar ásamt viðmiðsreitum sem hlutu enga meðferð. Jafnframt var athugað hvort vatnsheldni jarðvegs gæti útskýrt mun á fjöldi dýra milli meðferða. Til að leggja mat á samfélög smáfánnunnar við mismunandi framvindustig einstakra plöntutegunda, voru sýni tekin hjá sjálfsánum plöntum af mismunandi þéttleika meðfram birkieyjunum. Eftir 20 ára uppgræðslu einkenndust samfélög smáfánunnar hjá öllum meðferðum af fleiri dýrum, hærri tegundaauðgi og samfélagsfjölbreytni stökkmors en í óuppgræddu landi. Töluverður munur var á fjölda dýra, samfélagsfjölbreytni og sambærileika samfélaga milli meðferða. Flest dýr og flestar stökkmorstegundir fundust í lúpínureitum, en í víðieyjum mátti finna mesta samfélagsfjölbreytni stökkmors. Plöntutegundir voru misfljótar að mynda breiðari vist fyrir smádýr en í óuppgræddu landi, en víðirinn skar sig úr með mestan fjölda og tegundauðgi stökkmors þegar á fyrsta stigi framvindunnar. Fjöldi mítlahópa var mestur eftir 20 ára uppgræðslu, en engir ránmítlar fundust á fyrstu framvindustigum. Niðurstöður gefa til kynna að samfélagsgerð smáfánunnar og virkniseiginleikar stökkmors geti veitt töluverða innsýn í umhverfisaðstæður jarðvegsvista við mismunandi yfirborðsgerðir.

Author and committee

dc:creator, dc:contributor.*
Author dc:creator
  • Esther Marloes Kapinga 1989-
Contributors dc:contributor
  • Landbúnaðarháskóli Íslands

Subjects

dc:subject × 10

Rights

Language dc:language.iso
is

Identifiers

dc:identifier.*
Handle dc:identifier.uri
http://hdl.handle.net/1946/36047
OAI identifier oai:identifier
oai:skemman.is:1946/36047

Chain of custody

source
Harvested from
Agricultural University of Iceland
Base URL
skemman.is/oai/request
Last updated
2026-07-27
Source record
OAI-PMH GetRecord
citation

Esther Marloes Kapinga 1989-. Samfélög mítla (Acari) og stökkmors (Collembola) í mismunandi gróðurframvindu, 20 árum eftir uppgræðslu á Geitasandi. 2020. http://hdl.handle.net/1946/36047