Back to results

Agricultural University of Iceland

Efnaskiptaröskun hjá íslenskum hrossum

Abstract

dc:description.abstract

Efnaskiptaröskun (Equine metabolic syndrome, EMS) er samheiti yfir ýmis frávik í efnaskiptum hrossa sem auka hættu á hófsperru. Helstu einkenni EMS eru offita/og eða staðbundin fitusöfnun á makka og/eða lend, hækkun á insúlíni í blóði, óeðlileg insúlínsvörun við inngjöf glúkósa og hófsperra Markmið verkefnisins var að gera forathugun á umfangi EMS í hrossum hér á landi, út frá helstu einkennum sem hægt er að meta sjónrænt við eftirlit með velferð hrossa, án þess að greiningar hafi verið staðfestar með sértækum prófum. Einnig var markmiðið að lýsa í grófum dráttum aðstæðum hrossa sem bera sýnileg einkenni sjúkdómsins. Rafrænn spurningalisti var sendur á dýraeftirlitsmenn og eftirlits dýralækna Matvælastofnunar með ósk um eitt svar frá hverju eftirlitsumdæmi. Könnunin staðfesti að EMS er útbreiddur sjúkdómur í hrossum hér á landi. Oftast er um að ræða stök tilfelli í smáum hjörðum 10 hross) en einnig getur verið um hjarð vandamál að ræða. Eldri hryssur eru líklegastar til að bera einkenni sjúkdómsins. Eigendur þurfa að vera með vitaðir um fóðurþarfir hrossa og holdafar. Offóðrun getur verið hættuleg og eru hross sérstaklega viðkvæm fyrir fóðri sem inniheldur mikið af léttleysanlegum sykrum og sterkju. Hross þurfa mikla hreyfingu en verkefnalaus geldhross eru í mestri hættu á að fitna og þróa með sér sjúkdóminn.

Author and committee

dc:creator, dc:contributor.*
Author dc:creator
  • Berglind Ýr Ingvarsdóttir 1995-
Contributors dc:contributor
  • Landbúnaðarháskóli Íslands

Subjects

dc:subject × 3

Rights

Language dc:language.iso
is

Identifiers

dc:identifier.*
Handle dc:identifier.uri
http://hdl.handle.net/1946/34710
OAI identifier oai:identifier
oai:skemman.is:1946/34710

Chain of custody

source
Harvested from
Agricultural University of Iceland
Base URL
skemman.is/oai/request
Last updated
2026-07-27
Source record
OAI-PMH GetRecord
citation

Berglind Ýr Ingvarsdóttir 1995-. Efnaskiptaröskun hjá íslenskum hrossum. 2020. http://hdl.handle.net/1946/34710