Back to results

Agricultural University of Iceland

Staða faggreinar skipulagsfræðinga á Íslandi

Abstract

dc:description.abstract

Markmið rannsóknarinnar var að fá heildarsýn á stöðu faggreinar skipulagsfræðinga á Íslandi. Rannsóknin var framkvæmd með eigindlegri rannsóknaraðferð og unnið var með fyrirliggjandi gögn. Fram voru settar sex rannsóknarspurningar. Árið 1964 heimiluðu skipulagslög að fela sérmenntuðum mönnum gerð skipulagsuppdrátta. Hagsmunasamtök skipulagsfræðinga voru stofnuð 1985 og löggilding skipulagsfræðinga náðist árið 1986. Löggildir skipulagsfræðingar eru í jöfnum hlutföllum menntaðir erlendis og hérlendis. Sveitarfélögunum fer fækkandi með stækkandi skipulagssvæðum. Skipulagsstigin eru með svipuðum hætti á milli Norðurlandanna. Skipulagsfræðingar þurfa löggildingu á Íslandi, en prófgráður úr skipulagsfræðinámi gilda í Danmörku, Noregi og Svíþjóð, en í Finnlandi er vottunarferli þar sem metin er saman starfreynsla og menntun. Formgerð, samskipti og boðleiðir skipurita ráðneyta eru allt frá því að vera ásættanleg, yfir í það að vera illskiljanleg. Samskipti og boðleiðir skipurits Skipulagsstofnunar Íslands mættu vera skilvirkari. Löggildir sérfræðingar skv. lögum nr. 8/1996 í tækni- og hönnunargreinum eru liðlega 6.200 talsins. Sérfræðingarnir hafa ýmist BS próf eða MS próf og eiga það sammerkt að hafa óverulega, ef nokkra menntun í skipulagsfræðum. Þeir eru þó engu að síður gjaldgengir sem skipulagsráðgjafar og skipulagsfulltrúar, ef skilað er vottorði um staðfesta starfreynslu í a.m.k. tvö ár. Tæplega 93% af starfandi skipulagsfulltrúum sveitarfélaganna á Íslandi eru ekki löggildir skipulagsfræðingar. Ísland er það ríki á Norðurlöndunum sem býr við mesta spillingu samkvæmt listanum Transparency International. Í bókinni Hin mörgu andlit lýðræðis segir að valdamiklir bæjarstjórar og hraður vöxtur byggðar auki líkurnar á því að íbúar telji að pólitísk fyrirgreiðsla, frændsemi og kunningsskapur séu ríkjandi innan sveitarfélaga á Íslandi og að fagleg stjórnsýsla og aðhald landsstjórnarinnar vinni gegn spillingu. Tæp 86% skipulagsráðgjafa á lista Skipulagsstofnunar Íslands hafa ekki löggildingu sem skipulagsfræðingar. Skipulagsstofnun Íslands telur sig ekki hafa eftirlitsskyldu með ráðningum skipulagsfulltrúa hjá sveitarfélögunum á Íslandi. Í 33 sveitarfélögum er samvinna um sameiginlegan skipulagsfulltrúa og því sinna 11 skipulagsfulltrúar, þar af er einn sem er löggildur skipulagsfræðingur. Helstu niðurstöður þessarar rannsóknar gefa til kynna að staða skipulagsfræðinga á Íslandi sé ekki ásættanleg með tilliti til lagaumhverfis löggildra skipulagsfræðinga og eftirlits landsstjórnarinnar.

Author and committee

dc:creator, dc:contributor.*
Author dc:creator
  • Sigurður Steinar Jónsson 1965-
Contributors dc:contributor
  • Landbúnaðarháskóli Íslands

Subjects

dc:subject × 10

Rights

Language dc:language.iso
is

Identifiers

dc:identifier.*
Handle dc:identifier.uri
http://hdl.handle.net/1946/34490
OAI identifier oai:identifier
oai:skemman.is:1946/34490

Chain of custody

source
Harvested from
Agricultural University of Iceland
Base URL
skemman.is/oai/request
Last updated
2026-07-27
Source record
OAI-PMH GetRecord
citation

Sigurður Steinar Jónsson 1965-. Staða faggreinar skipulagsfræðinga á Íslandi. 2019. http://hdl.handle.net/1946/34490