Back to results

Agricultural University of Iceland

Eistnastærð íslenskra stóðhesta

Abstract

dc:description.abstract

Allir stóðhestar sem koma til kynbótadóms undirgangast svokallaða eistnaskoðun þar sem eistun eru mæld og metinn. Fáar rannsóknir hafa verið gerðar á eistnastærð og kynheilbrigði íslenskra stóðhesta. Frjósemi stóðhesta er lykilþáttur í árangursríku ræktunarstarfi. Markmið þessa verkefnis er að athuga hvaða áhrif aukin skyldleikarækt hefur á eistnastærð íslenskra stóðhesta. Þau mál sem verða skoðuð eru lengd og breidd beggja eistna ásamt þvermálsmælingu (TSW) þeirra og stinnleika. Þá er athugað hvort að sýningarár, aldur hestsins og hæð á herðar hafi marktæk áhrif á eistnastærð stóðhesta. Rannsóknin fór fram á niðurstöðum eistnaskoðunar á stóðhestum sem komið hafa í dóm á árabilinu 2012-2017. Gögnin tóku til 1311 stóðhesta þar sem hver hestur kom aðeins einu sinni fyrir og miðað var við nýjustu mælingu hvers og eins. Meðal skyldleikaræktarstuðullinn var 2,66 og meðal ætternistuðullinn (PEC5) 0,79. Meðal lengd eistnanna var 10,12 sm á hægra eista og 10,00 sm á vinstra eista, meðal breidd beggja eistna var 5,65 sm. Meðal TSW mældist 10,02 sm og meðal stinnleiki 1,09. Við útreikninga á þéttleika ætternisgagna og skyldleikaræktarstuðlum var notast við forritið EVA_inbred (Sørensen o.fl., 2008). Tölfræðiforritið SAS 9.4 var notað til annara útreikninga. Fervikagreining var gerð til þess að kanna áhrif skyldleikaræktar á eistnastærð, leiðrétt var fyrir aldri, sýningarári og hæð á herðar. Aðhvarfsgreining var gerð til þess að athuga hvað 1% aukning í skyldleikarækt hefði á eistnamálin. Þá var aðhvarfsgreining einnig gerð til þess að athuga hvað 1% aukning hæðar á herðar hefði á eistnamálin. Skyldleikarækt hafði marktæk neikvæð áhrif á lengd vinstra eista en hafði ekki marktæk áhrif á aðrar eistnamælingarnar. Hæð á herðar hafði marktæk áhrif á eistnamálin þar sem að eistnastærðin jókst með hækkandi hæð. Sýningarár og aldur höfðu einnig marktæk áhrif á allar eistnamælingarnar. Mikilvægt er að fylgjast með áhrifum skyldleikaræktar á kynheilbrigði í íslenskum stóðhestum en dæmi eru um neikvæð áhrif skyldleikaræktunar á frjósemi.

Author and committee

dc:creator, dc:contributor.*
Author dc:creator
  • Ragnhildur S Eyþórsdóttir 1996-
Contributors dc:contributor
  • Landbúnaðarháskóli Íslands

Subjects

dc:subject × 6

Rights

Language dc:language.iso
is

Identifiers

dc:identifier.*
Handle dc:identifier.uri
http://hdl.handle.net/1946/33488
OAI identifier oai:identifier
oai:skemman.is:1946/33488

Chain of custody

source
Harvested from
Agricultural University of Iceland
Base URL
skemman.is/oai/request
Last updated
2026-07-27
Source record
OAI-PMH GetRecord
citation

Ragnhildur S Eyþórsdóttir 1996-. Eistnastærð íslenskra stóðhesta. 2019. http://hdl.handle.net/1946/33488