Abstract
dc:description.abstractFóðurgjöf hvetur át mjólkurkúa og hefur áhrif á át, heilbrigði og atferli. Markmið rannsóknarinnar var að greina hvernir kýr nýta tímann sinn í lausagöngufjósum og sjá hvernig atferli og fóðrun vinna saman. Rannsóknin átti sér stað á sex bóndabæjum, þrír með langan fóðurgang og þrír með stuttan. Tekin var úttekt á ýmsum stærðum í fjósunum tengd aðbúnaði, þ.á.m. lengd fóðurganga, lengd og breidd legubása, breidd ganga og tegund umferðar. Skráð var fjöldi gripa, staðsetning þeirra og aðgerð sem nýttist til uppsetningar á töflu um tímanotkun og samanburðar á milli bæja. Kom í ljós að umferðastýring fjósa hafði ekki áhrif á mætingu í mjaltaþjón. Kýrnar voru virkastar yfir daginn, frá 08:00 um morguninn til 20:00 á kvöldin. Tími og tíðni fóðurgjafa hafði áhrif á legu og atferli. Kýr í fjósum þar sem fóðurgjöf var seint að kvöldi fóru seinna að leggja sig og fóðurgjafir daglega juku óróleika kúnna. Ekki var marktækur munur á atferli kúa þegar fjöldi kúa var 20% meiri en fjöldi legubása. Niðurstöður benda til þess að fjöldi kúa má vera 15% meiri en reglugerð segir til um og fóðurgjöf annan hvern dag dregur úr óróleika í fjósum og eykur nytjar.
Author and committee
dc:creator, dc:contributor.*- Author dc:creator
-
- Maria Danielsdóttir Vest 1996-
- Contributors dc:contributor
-
- Landbúnaðarháskóli Íslands
Subjects
dc:subject × 3Rights
- Language dc:language.iso
- is
Identifiers
dc:identifier.*- Handle dc:identifier.uri
- http://hdl.handle.net/1946/33486
- OAI identifier oai:identifier
- oai:skemman.is:1946/33486