Back to results

Agricultural University of Iceland

Heilandi garðar og möguleikar þeirra á Íslandi

Abstract

dc:description.abstract

Heilandi garðar hvort sem er fyrir andlega eða líkamlega endurheimt eru víða þekkt fyrirbæri. Fjölmargar heilbrigðisstofnanir eru farnar að koma upp görðum sem styðja við bata sjúklinganna ásamt því að veita starfsfólki og aðstandendum dýrmætt athvarf til að fá andlega endurheimt. Fyrir liggur fjöldi rannsókna sem hefur sýnt fram á raunverulegan árangur slíkra garða, þar sem bati gengur hraðar og betur og getur einnig haft áhrif á að sjúklingar þurfi minna af verkjalyfjum. Rannsóknir hafa einnig sýnt fram á að andleg veikindi vegna álags og streitu aukast sífellt og heilandi garðar geta hjálpað mikið í því samhengi eins og Alnarp garðurinn í Svíþjóð hefur sannað. Þrátt fyrir að nágrannalöndin í kringum okkur hafi mörg hver nýtt sér áhrifamátt slíkra garða þá hefur ekki verið komið upp slíkum garði hér á landi þrátt fyrir að græn svæði séu til staðar í kringum stofnanir. Með þessari ritgerð er því verið að hvetja og sína fram á möguleika og mikilvægi heilandi garða fyrir Ísland og þá sérstaklega beint sjónum að Landspítalanum Háskólasjúkrahúsi.

Author and committee

dc:creator, dc:contributor.*
Author dc:creator
  • Guðfinna Mjöll Magnúsdóttir 1979-
Contributors dc:contributor
  • Landbúnaðarháskóli Íslands

Rights

Language dc:language.iso
is

Identifiers

dc:identifier.*
Handle dc:identifier.uri
http://hdl.handle.net/1946/31979
OAI identifier oai:identifier
oai:skemman.is:1946/31979

Chain of custody

source
Harvested from
Agricultural University of Iceland
Base URL
skemman.is/oai/request
Last updated
2026-07-27
Source record
OAI-PMH GetRecord
related terms
citation

Guðfinna Mjöll Magnúsdóttir 1979-. Heilandi garðar og möguleikar þeirra á Íslandi. 2018. http://hdl.handle.net/1946/31979