Back to results

Agricultural University of Iceland

Breytileiki baktería á milli þriggja jarðvegsgerða í Húsafelli

Abstract

dc:description.abstract

Eftirfarandi ritgerð er lögð fram sem lokaverkefni til BSc-gráðu við Landbúnaðarháskóla Íslands, vorið 2018. Markmið rannsóknarinnar var að skoða breytileika í bakteríu samfélagi í íslenskum jarðvegi. Borinn var saman bakteríu fjölbreytileiki í þremur mismunandi gróðurgerðum, þ.e. mel, mó- og skóglendi. Þar að auki var nokkrum umhverfisþáttum, sem gætu haft áhrif á bakteríu breytileikann, gerð skil. Engar rannsóknir hafa verið framkvæmdar um breytileika í samfélagi jarðvegsbaktería hér á landi með þeim aðferðum sem var beitt í þessari rannsókn. Jarðvegssýnin, sem verkefnið byggir á, voru tekin við Húsafell á þremur mismunandi svæðum með þremur endurtekningum. Erfðaefni bakteríanna var einangrað úr jarðvegssýnunum og sent í 16S rRNA gena raðgreiningu til Quebec í Kanada. Genaraðir voru meðhöndlaðar með ýmsum tölvuforritum þ.m.t. MobaXTerm, DaDa2 og Qiime2 til að fá fram þann fjölbreytileika baktería sem var til staðar í jarðvegsýnunum. Niðurstöður sýndu að mesti munur á samfélögum jarðvegsbaktería var á milli melsins annarsvegar og mó- og skóglendisins hins vegar. Mögulega er meiri fjölbreytileiki jarðvegsbaktería í melajarðvegi en öðrum jarðvegsgerðum en frekari rannsókna er þörf til að prófa þá tilgátu betur. Þau eðlis- og efnafræðilegu umhverfisáhrif sem hafa áhrif á fjölbreytileikann eru einkum sýrustig (pH H2O) ásamt kolefnis- og C/N hlutfalli jarðvegsins. Einhver fjölbreytileiki sást ef borinn var saman fjölbreytileiki mólendis við skóglendi. Nokkur breytileiki sást á milli mólendis og skóglendis og einn skógarreiturinn skar sig mikið út en þar var sýrustig hærra og minna af lífrænum efnum en í hinum mó- og skóglendisreitunum.

Author and committee

dc:creator, dc:contributor.*
Author dc:creator
  • Gabríela María Reginsdóttir 1993-
Contributors dc:contributor
  • Landbúnaðarháskóli Íslands

Subjects

dc:subject × 5

Rights

Language dc:language.iso
is

Identifiers

dc:identifier.*
Handle dc:identifier.uri
http://hdl.handle.net/1946/31412
OAI identifier oai:identifier
oai:skemman.is:1946/31412

Chain of custody

source
Harvested from
Agricultural University of Iceland
Base URL
skemman.is/oai/request
Last updated
2026-07-27
Source record
OAI-PMH GetRecord
citation

Gabríela María Reginsdóttir 1993-. Breytileiki baktería á milli þriggja jarðvegsgerða í Húsafelli. 2018. http://hdl.handle.net/1946/31412