Back to results

Agricultural University of Iceland

Mæling á svörtu kolefni / hreinu kolefni úr útblæstri bíla: Þróun aðferðar

Abstract

dc:description.abstract

Svart kolefni/hreint kolefni eru hluti af kolefniskennda hluta efnis sem myndast við ófullkominn bruna jarðefnaeldsneytis og hafa aukist töluvert í náttúrunni síðustu áratugina eða eftir iðnbyltingu. Þetta eru efni sem geta bæði valdið náttúrunni sem og mönnum miklum skaða. Talið er að svart kolefni geti verið krabbameinsvaldandi sem og að þessi efni geti haft gífurleg áhrif á loftslag og vistkerfi. Í þessu verkefni var leitast eftir því að þróa aðgengilega aðferð til þess að mæla svart/hreint kolefni sem hagnýta mætti til þess að mæla magn þessara efna í díselútblæstri. Verkefnið var tvíþætt. Annars vegar prófun á brennslu ólífræns og lífræns kolefnis þar sem notaður var brennsluofn af gerðinni CD-1200G (Vacuum tube high temperature furnace). Þar voru notuð kol og sellulósi til þess að reyna að greina hvernig brennsluaðferð þyrfti að nota til þess að brenna allt lífræna kolefnið en halda öllu ólífræna efninu í sýninu til þess að þróa áfram aðferð til mælinga á svörtu/hreinu kolefni. Hins vegar var prófuð NIR greining á sýnum úr díselútblæstri sem safnað var á ryksíur og athugað hvort litróf fengjust sem gæfu vísbendingar um innihald svarts/hreins kolefnis.

Author and committee

dc:creator, dc:contributor.*
Author dc:creator
  • Björk Lárusdóttir 1995-
Contributors dc:contributor
  • Landbúnaðarháskóli Íslands

Subjects

dc:subject × 7

Rights

Language dc:language.iso
is

Identifiers

dc:identifier.*
Handle dc:identifier.uri
http://hdl.handle.net/1946/27986
OAI identifier oai:identifier
oai:skemman.is:1946/27986

Chain of custody

source
Harvested from
Agricultural University of Iceland
Base URL
skemman.is/oai/request
Last updated
2026-07-27
Source record
OAI-PMH GetRecord
citation

Björk Lárusdóttir 1995-. Mæling á svörtu kolefni / hreinu kolefni úr útblæstri bíla: Þróun aðferðar. 2017. http://hdl.handle.net/1946/27986