Back to results

Agricultural University of Iceland

Finnum fléttur

Abstract

dc:description.abstract

Greinargerð þessi er fylgiskjal með bókinni „Finnum fléttur“. Bókin er fyrst og fremst samin með það í huga að hún nýtist sem fræðsluefni fyrir grunnskólanemendur. Fléttur eru merkilegar lífverur sem mynda lítið vistkerfi sem samanstendur að minnsta kosti af tveimur lífverum, svepp og ljóstillífandi samstarfsaðila. Fléttur finnast víða um land á allskonar undirlagi. Þær hafa almennt góða aðlögunarhæfni og eru oft fyrstu landnemarnir á nýjum hraunum eða á svæðum þar sem annar gróður á erfitt uppdráttar. Til að þroskast sem flétta verður spírandi sveppagróið að finna sambýling (grænþörung og/eða blábakteríu) sem hentar til þess að verða flétta. Einnig geta fléttur fjölgað sér kynlaust þegar þalbútar brotna af fléttunni við hnjask, berast með vindi, fuglum eða dýrum um skemmri eða lengri veg. Þalbútarnir innihalda bæði svepp og grænþörung sem verða samferða á áfangastað. Sumar fléttur mynda efnasambönd sem hvergi finnast annarsstaðar í lífheiminum. Þessar sýrur nefnast fléttusýrur og gefa sumum fléttum þann eiginleika að hægt er að nota þær í náttúrulyf. Rannsóknir hafa sýnt að fléttur og aðrar lífverur sem lifa við erfið umhverfisskilyrði mynda oft sérhæfð efni til verndar og vaxtar. Það gerir þessar lífverur áhugaverðar til skoðunar í almenna lyfjaframleiðslu.

Author and committee

dc:creator, dc:contributor.*
Author dc:creator
  • Heiða Lára Eggertsdóttir 1960-
Contributors dc:contributor
  • Landbúnaðarháskóli Íslands

Subjects

dc:subject × 7

Rights

Language dc:language.iso
is

Identifiers

dc:identifier.*
Handle dc:identifier.uri
http://hdl.handle.net/1946/26420
OAI identifier oai:identifier
oai:skemman.is:1946/26420

Chain of custody

source
Harvested from
Agricultural University of Iceland
Base URL
skemman.is/oai/request
Last updated
2026-07-27
Source record
OAI-PMH GetRecord
citation

Heiða Lára Eggertsdóttir 1960-. Finnum fléttur. 2016. http://hdl.handle.net/1946/26420