Back to results

Agricultural University of Iceland

Skrautgróður til ánægju og augnayndis Notkun fjölæringa á opinberum svæðum - áskoranir og möguleikar

Abstract

dc:description.abstract

Þéttbýli eru sífellt að aukast um heim allan og menn flykkjast í atvinnuleit úr dreifbýlinu í bæjarmenninguna. Þessi öra þéttbýlismyndun gefur oft lítið pláss fyrir gróðursvæði. Mikilvægi gróðurs á lýðheilsu er velþekkt og bætir gróður í nærumhverfi bæjarbúa lífsgæði fólks. Gróður má sjá víða á opnum svæðum þéttbýlis og víða erlendis sér í lagi í Evrópu hefur þróast gróskumikil og fjölbreytileg gróðursvæði frekar en opin grassvæði. Þessi ritgerð felst í að kanna gróðurnotkun innan bæjarfélaga og kynna þær stefnur sem hægt væri að taka upp hérlendis sem þróast hefur í Evrópu. Fjallað verður stuttlega um þróun á notkun fjölæringa erlendis í garðlist, allt frá velskipulögðum endurreisnargörðum til stefnu sem hefur þróast þar sem gróður í villtri náttúru er hafður til fyrirmyndar. Tekin eru dæmi úr bæjarfélögum sem eru til fyrirmyndar og hafa skipulagt græn svæði með áherslu á fjölæringa með náttúrulegu yfirbragði. Farið verður yfir sögu fjölæringaræktunar á íslenskri grundu og helstu almenningsgarðar sem rækta skrúðplöntur eða líkir yfirbragði garðsins við villta náttúru. Gerð var könnun til að kanna notkun fjölæringa hjá bæjarfélögum í dag. Könnunin gefur vísbendingum um stöðu gróðurs í bæjarfélögum og reynt var að koma með lausnir við þeim vandamálum sem fundust í svörum garðyrkjustjóra. Síðast en ekki síst eru erlendar heimildir skoðaðar meðal annars eftir Piet Oudolf og Noel Kingsbury og nýttar til að auðga þekkingu á fjölæringum bæði kosti þeirra og galla en einnig er útskýrt með töflu frá Kingsbury þá möguleika í vali yfirbragða með tilliti til umhirðumagns og sjálfbærni.

Author and committee

dc:creator, dc:contributor.*
Author dc:creator
  • Sigríður Embla Heiðmarsdóttir 1992-
Contributors dc:contributor
  • Landbúnaðarháskóli Íslands

Subjects

dc:subject × 5

Rights

Language dc:language.iso
is

Identifiers

dc:identifier.*
Handle dc:identifier.uri
http://hdl.handle.net/1946/25089
OAI identifier oai:identifier
oai:skemman.is:1946/25089

Chain of custody

source
Harvested from
Agricultural University of Iceland
Base URL
skemman.is/oai/request
Last updated
2026-07-27
Source record
OAI-PMH GetRecord
citation

Sigríður Embla Heiðmarsdóttir 1992-. Skrautgróður til ánægju og augnayndis Notkun fjölæringa á opinberum svæðum - áskoranir og möguleikar. 2016. http://hdl.handle.net/1946/25089