Back to results

Agricultural University of Iceland

Aðkoma og tenging ferðaþjónustubúa á Vesturlandi

Abstract

dc:description.abstract

Í ritgerð þessari eru tekin saman flest öll ferðaþjónustubú á Vesturlandi, staðsetning þeirra greind út frá vegakerfi og áhrif staðsetningar á rekstur. Samkvæmt ábúendum á ferðaþjónustubúum hætta ferðamenn oft við að heimsækja bú er standa lengra frá þjóðvegi vegna vegalengdar eða ástands vegar. Að hafa skilti sem vísar á búið, staðsett við þjóðveg er samkvæmt greiningum í þessu riti góð auglýsing og hefur mikil áhrif á að draga ferðamanninn að. Þeir bæir sem standa nær þjóðvegi og hafa sterkari tengingar við aðra ferðaþjónustu í nálægð við sig virðast standa betur að vígi en önnur bú þegar kemur að því að draga ferðamenn að búinu. Er það eina ástæðan fyrir því að rekstur ferðaþjónustubúa á þessum svæðum virðist ganga betur? Staðsetning virðist vera mikilvæg þegar kemur að ferðaþjónustu,sama hvaða mynd sú þjónusta tekur á sig og þá virðist tengingar við annarskonar þjónustu í nálægð vera mikilvægar. Hvaða atriði eru það við staðsetningu sem skiptir mestu máli? Eftir greiningarvinnu við rit þetta virðist svarið vera aðgengi að ferðaþjónustustað og tengingar við aðra þjónustu í nágreninu.

Author and committee

dc:creator, dc:contributor.*
Author dc:creator
  • Rögnvaldur Þorbjarnarson 1992-
Contributors dc:contributor
  • Landbúnaðarháskóli Íslands

Subjects

dc:subject × 5

Rights

Language dc:language.iso
is

Identifiers

dc:identifier.*
Handle dc:identifier.uri
http://hdl.handle.net/1946/25088
OAI identifier oai:identifier
oai:skemman.is:1946/25088

Chain of custody

source
Harvested from
Agricultural University of Iceland
Base URL
skemman.is/oai/request
Last updated
2026-07-27
Source record
OAI-PMH GetRecord
citation

Rögnvaldur Þorbjarnarson 1992-. Aðkoma og tenging ferðaþjónustubúa á Vesturlandi. 2016. http://hdl.handle.net/1946/25088