Back to results

Agricultural University of Iceland

Langtímaáhrif alaskalúpínu og áburðargjafar á lifun og vöxt birkis í Þjórsárdal

Abstract

dc:description.abstract

Alaskalúpína er harðgerð, niturbindandi jurt upprunin í N-Ameríku. Hún hefur lengi verið nýtt hérlendis til að græða upp auðnir og rofið land. Þegar lúpínan nær að þekja rofið land eykst nitur-og kolefnisforði jarðvegs. Í kjölfarið tekur að myndast nýtt vistkerfi sem einkennist af frjósemi og grósku, auðugt af margskonar lífverum. Þar sem alaskalúpínan er jarðvegsbætandi, er það fýsilegur kostur að nýta hana við skóggræðslu á svæðum þar sem næringarefni skortir. Í Sandártungu í Þjórsárdal hófst uppgræðsla með alaskalúpínu á sjöunda áratug síðustu aldar og síðan þá hafa lúpínubreiður á söndunum smám saman farið stækkandi. Árið 2002 voru birkiplöntur gróðursettar í tilraunareiti á Vikrum, annars vegar í lúpínubreiður og hins vegar í sandsvæði, til að kanna áhrif uppgræðslunnar á lifun og vöxt birkisins. Í tilrauninni voru meðferðarliðir með engum áburði, 0,2 g og 10 g á plöntu til að kanna áhrif mismunandi áburðargjafar við gróðursetningu. Minni áburðarskammturinn var settur í plöntuhnausinn rétt fyrir gróðursetningu og hefur þessi aðferð ekki verið reynd fyrr í nýskógrækt. Mælingar á úrtakstrjám og skráning lifunar hafa verið gerð reglulega á hluta reitanna. Sumarið 2014 voru mælingar gerðar í öllum reitum og meðferðum og í fyrsta sinn voru allar plöntur hæðarmældar og skrásett hvort lúpína væri í næsta nágrenni við hverja plöntu. Mælingar áranna 2003, 2006 og 2014 eru megin uppistaða þess sem birt er hér. Helstu niðurstöður voru þær að marktækur munur var á milli svæðanna bæði hvað varðaði lifun og hæðarvöxt trjánna. Hæðarvöxtur var mun meiri í lúpínubreiðum en á sandsvæðum, en minni munur var á lifun á milli svæðanna. Samanburður á áburðarmeðferðum sýndi að plöntur sem fengu 0,2 g á plöntu í rótarhnaus við gróðursetningu reyndust með besta lifun á sandsvæði og sama meðferð gaf besta hæðarvöxtinn innan lúpínubreiða. Niðurstöðurnar gefa til kynna að hvort heldur sé gróðursett innan eða utan lúpínu, sé þetta nægilegur skammtur fyrir plönturnar til að halda velli.

Author and committee

dc:creator, dc:contributor.*
Author dc:creator
  • Jóhanna Bergrúnar Ólafsdóttir 1973-
Contributors dc:contributor
  • Landbúnaðarháskóli Íslands

Subjects

dc:subject × 4

Rights

Language dc:language.iso
is

Identifiers

dc:identifier.*
Handle dc:identifier.uri
http://hdl.handle.net/1946/25079
OAI identifier oai:identifier
oai:skemman.is:1946/25079

Chain of custody

source
Harvested from
Agricultural University of Iceland
Base URL
skemman.is/oai/request
Last updated
2026-07-27
Source record
OAI-PMH GetRecord
citation

Jóhanna Bergrúnar Ólafsdóttir 1973-. Langtímaáhrif alaskalúpínu og áburðargjafar á lifun og vöxt birkis í Þjórsárdal. 2016. http://hdl.handle.net/1946/25079