Back to results

Agricultural University of Iceland

Kítósanlausnir fyrir ylrækt

Abstract

dc:description.abstract

Gerð var tilraun með notkun kítósanlausnar við ræktun gúrkna (Cucumis sativus L.) í garðyrkjustöðinni að Laugalandi í Borgarfirði. Gúrkuplöntur (n=76) voru úðaðar þrisvar fyrstu fjórar vikur eftir sáningu með mismunandi sterkum kítósanlausnum framleiddum af Primex ehf. Meðferðarhópar voru þrír. Tveir fengu þynntar kítósanslausnir í tveimur styrkleikum (lausn:vatn = 1:3 og 1:9) og samanburðarhópur fékk eingöngu vatn. Sykruinnihald var mælt tvisvar yfir uppskerutímabilið með °brixmæli. Fylgst var með tilfellum sýktra plantna, en gúrkusýki (e. gummy stem blight) sem sveppurinn Didymella bryoniae veldur er algeng. Uppskera frá hverjum hópi var vigtuð daglega yfir allt uppskerutímabilið, sem náði frá 19. janúar til 2. apríl 2016, en uppskera/plöntu var ekki vigtuð. Marktæk áhrif kítósans á sykruinnihald fundust í seinni °brix-mælingu (P=0,0342) en ekki þeirri fyrri (P=0,524). Marktæk áhrif (P<0,001) þynnri kítósanlausnarinnar (1:9) fundust á tíðni (1,3%) sýkinga samanborið við samanburðarhópinn (18,4%). Áhrif sterkari kítósanlausnarinnar (1:3) voru nálægt því að vera marktæk (tíðni=7,9%; P=0,055). Marktækt hærri uppskera gúrkna mældist í 1:9 meðferðarhópnum í fyrstu (P=0,048), fjórðu (P=0,033) og fimmtu (P=0,009) viku uppskerutímabilsins. Marktæk áhrif fundust ekki á heildaruppskeru. Rannsóknin bendir til þess að sterkar kítósanlausnir geti dregið úr uppskeru gúrkna. Hópurinn sem fékk þynnri lausnina (1:9) uppskar 4,04% meira en samanburðarhópurinn og hópurinn sem fékk sterkari lausnina (1:3) uppskar 3,62% minna en samanburðarhópurinn.

Author and committee

dc:creator, dc:contributor.*
Author dc:creator
  • Brynhildur Svava Ólafsdóttir 1991-
Contributors dc:contributor
  • Landbúnaðarháskóli Íslands

Subjects

dc:subject × 4

Rights

Language dc:language.iso
is

Identifiers

dc:identifier.*
Handle dc:identifier.uri
http://hdl.handle.net/1946/25072
OAI identifier oai:identifier
oai:skemman.is:1946/25072

Chain of custody

source
Harvested from
Agricultural University of Iceland
Base URL
skemman.is/oai/request
Last updated
2026-07-27
Source record
OAI-PMH GetRecord
citation

Brynhildur Svava Ólafsdóttir 1991-. Kítósanlausnir fyrir ylrækt. 2016. http://hdl.handle.net/1946/25072