Back to results

Agricultural University of Iceland

„Dalvíkin er draumablá og dýrðleg til að sjá“ Aðdráttarafl og ásýnd miðbæjar Dalvíkur

Abstract

dc:description.abstract

Aðlaðandi bæjarrými og staðarandi eru aðdráttaröfl fyrir þéttbýlisstaði á landsbyggðinni og geta skipt sköpum fyrir atvinnulíf á svæðinu. Með verkefninu verður varpað ljósi á þátt hönnunar og skipulags í að styrkja staðaranda, auðga mannlíf og aðdráttarafl bæja. Skoðaðar eru forsendur fyrir gæði bæjarrýma og hvaða hönnunarþættir laða að mannlíf. Miðbær Dalvíkur er tekinn fyrir sem dæmi og unnin hönnunartillaga með það markmið að styrkja bæjarrými og aðdráttarafl miðbæjar Dalvíkur. Verkefnið er byggt upp eftir eftirfarandi markmiðum: Hvernig umhverfi styður við mannlíf og aðdráttarafl staðar? Greining á miðbæjarsvæði Dalvíkur Hönnunartillaga að bættri ásýnd miðbæjar Dalvíkur Fjallað er um hvernig hægt er að nýta staðaranda og sérstöðu byggðar við hönnun og dregnir eru fram þættir sem ýta undir gæði bæjarrýma og laða að mannlíf. Litið er til aukinnar umferðar ferðamanna um landsbyggðina og þeirra áhrifa og tækifæra sem bæjarfélög standa frammi fyrir vegna ferðamannastraumsins. Verkefnið tekur miðbæ Dalvíkur fyrir sem tilvik um hvernig hægt er að nýta hönnunarþætti til að styrkja aðdráttarafl staðarins. Skoðaðar eru skipulagsáætlanir, rýnt í söguna og staðarandann og gerðar eru greiningar til að skoða möguleika miðbæjarins. Hönnunartillaga er sett fram að bættu miðbæjarumhverfi þar sem unnið er með þá hönnunarþætti sem ýta undir gæði bæjarrýma. Bæjarrými eru partur af okkar daglega lífi og sýnir verkefnið fram á að sé vel farið að við hönnun þeirra geta þau verið mikið aðdráttarafl og auðgað mannlíf og gæði umhverfis okkar.

Author and committee

dc:creator, dc:contributor.*
Author dc:creator
  • Anna Kristín Guðmundsdóttir 1991-
Contributors dc:contributor
  • Landbúnaðarháskóli Íslands

Subjects

dc:subject × 10

Rights

Language dc:language.iso
is

Identifiers

dc:identifier.*
Handle dc:identifier.uri
http://hdl.handle.net/1946/25070
OAI identifier oai:identifier
oai:skemman.is:1946/25070

Chain of custody

source
Harvested from
Agricultural University of Iceland
Base URL
skemman.is/oai/request
Last updated
2026-07-27
Source record
OAI-PMH GetRecord
citation

Anna Kristín Guðmundsdóttir 1991-. „Dalvíkin er draumablá og dýrðleg til að sjá“ Aðdráttarafl og ásýnd miðbæjar Dalvíkur. 2016. http://hdl.handle.net/1946/25070