Back to results

Agricultural University of Iceland

Silfra í þjóðgarðinum á Þingvöllum: Stjórnun takmarkaðrar auðlindar

Abstract

dc:description.abstract

Í þjóðgarðinum á Þingvöllum er leyfilegt að kafa í tveimur gjám, Davíðsgjá og Silfru. Köfun í þeirri síðarnefndu nýtur mikilla vinsælda og hefur gert það í að minnsta kosti 20 ár. Mikið álag er á gjánni og umhverfi hennar og hefur hvort tveggja látið á sjá. Árið 2013 voru tekin upp gestagjöld sem standa skyldu undir kostnaði við þá þjónustu sem veitt er köfurum og þeirri aðstöðu sem komið hefur verið upp fyrir þá. Fjöldi þeirra sem kafað hefur í Silfru eftir að gestagjöldin voru tekin upp hefur ekki minnkað heldur hefur þeim þvert á móti fjölgað auk þess sem rekstraraðilar sem selja ferðir í köfun í Silfru voru orðnir sjö talsins árið 2015. Gestagjöldin sem aðferð við stjórnun í Silfru hafa því ekki skilað tilætluðum árangri vegna þess að ekkert þak er á fjölda rekstraraðila sem mega starfa við Silfru auk þess sem fjöldi kafara sem kafar á degi hverjum í gjánni er ótakmarkaður. Mikilvægt er finna aðra leið til þess að stjórna umferð í og við Silfru. Í þessari ritgerð eru kynntar til sögunnar þrjár aðferðir sem notaðar eru til þess að stjórna takmörkuðum auðlindum og þær yfirfærðar á Silfru. Í þeim öllum er gert ráð fyrir takmörkuðum fjölda gesta og rekstraraðila. Í lokaorðum kemur fram að hægt er að nota allar þrjár aðferðirnar við stjórnun í Silfru en einnig má nota þær sem verkfæri við stjórnun á ferðamannastöðum almennt.

Author and committee

dc:creator, dc:contributor.*
Author dc:creator
  • Jóna Kolbrún Sigurjónsdóttir 1976-
Contributors dc:contributor
  • Landbúnaðarháskóli Íslands

Subjects

dc:subject × 7

Rights

Language dc:language.iso
is

Identifiers

dc:identifier.*
Handle dc:identifier.uri
http://hdl.handle.net/1946/22096
OAI identifier oai:identifier
oai:skemman.is:1946/22096

Chain of custody

source
Harvested from
Agricultural University of Iceland
Base URL
skemman.is/oai/request
Last updated
2026-07-27
Source record
OAI-PMH GetRecord
citation

Jóna Kolbrún Sigurjónsdóttir 1976-. Silfra í þjóðgarðinum á Þingvöllum: Stjórnun takmarkaðrar auðlindar. 2015. http://hdl.handle.net/1946/22096