Back to results

Agricultural University of Iceland

Gufunes - Útivistarsvæði og sjálfbært smáhúsahverfi

Abstract

dc:description.abstract

Gufunesið í Grafarvogi er opið svæði með ríka sögu sem hefur verið mikilvægt fyrir þróun Reykjavíkur. Í upphafi var Gufunesið landnámsjörð og hefur síðan verið verðmæt landbúnaðarjörð í gegnum aldirnar, bæði sem konungs- og kirkjujörð. Á 18. öldinni, um nokkra áratugi var ellispítali þar fyrir fátækt gamalt fólk. Síðar á hernámsárunum var ameríski herinn um nokkurt skeið með bragga í Gufunesi. Þegar litið er til mikilvægis Gufuness í sögu Reykvíkinga þá skiptir máli að Gufunesið nýtist vel fyrir Reykjavík. Fyrri rannsóknir og greiningarvinna var stór þáttur fyrir undirbúning skipulagstillögunnar þar sem svæðið var skoðað og metið nokkrum sinnum. Að lokum var skipulagstillaga lögð fram í samræmi við markmið og niðurstöður greininga. Niðurstaðan er að Gufunesið er vel staðsett fyrir sjálfbært smáhúsahverfi þar sem fólk með áhuga á ræktun getur ræktað sinn eigin mat og kynnst náunga sínum. Rík áhersla er lögð á að bæta hag göngu- og hjólreiðafólks, en draga úr notkun einkabílsins. Þá mun stórt fjölbreytt útivistarsvæði í næsta nágrenni, styrkja enn frekar slíkt sjálfbært smáhúsahverfi og laða fólk að svæðinu.

Author and committee

dc:creator, dc:contributor.*
Author dc:creator
  • Jón Hámundur Marinósson 1961-
Contributors dc:contributor
  • Landbúnaðarháskóli Íslands

Rights

Language dc:language.iso
is

Identifiers

dc:identifier.*
Handle dc:identifier.uri
http://hdl.handle.net/1946/22087
OAI identifier oai:identifier
oai:skemman.is:1946/22087

Chain of custody

source
Harvested from
Agricultural University of Iceland
Base URL
skemman.is/oai/request
Last updated
2026-07-27
Source record
OAI-PMH GetRecord
related terms
citation

Jón Hámundur Marinósson 1961-. Gufunes - Útivistarsvæði og sjálfbært smáhúsahverfi. 2015. http://hdl.handle.net/1946/22087