Back to results

Agricultural University of Iceland

Ethanol Production from Timothy (Phleum pratense L.)

Abstract

dc:description.abstract

Þverrandi birgðir jarðefnaeldsneytis og umhverfisáhrif þess hafa aukið áhuga á öðrum endurnýjanlegum orkugjöfum. Framleiðsla lífetanóls með annars stigs gerjun á vallarfoxgrasi er áhugaverður kostur. Í þessu verkefni voru skoðuð áhrif mismunandi sláttutíma á etanól uppskeru. Örverur sem notaðar voru til etanól framleiðslunnar voru: Clostridium thermocellum, Thermoanaerobacter ethanolicus, Thermoanaerobacter stofn J1, Zymomonas mobilis, Kluyveromyces marxianus og Saccharomyces cerevisiae. Vallarfoxgrasið var slegið sumarið 2014 á Möðruvöllum í Hörgárdal. Borin voru saman fjögur þroskastig vallarfoxgrassins: blaðvöxtur (H1), mið-skriðtími (H2), eftir skrið (H3) og að lokinni blómgun (H4). Niðurstöður verkefnisins benda til þess að sláttutími vallarfoxgrass hafi marktæk áhrif á etanól uppskeru (mM/L). Það var þó ekki marktækur munur fyrir alla sláttutíma né fyrir alla örverustofna sem notaðir voru. Oft var marktækur munur á etanól framleiðslu milli snemmslegna grasins og því síðarslegna. Það reyndist ekki mikill munur á skilvirkni etanól framleiðslunnar milli sláttutíma. Það var yfirleitt marktækur munur á fyrsta sláttutímanum samanborið við hina þrjá. Þegar framleiðslan var reiknuð yfir á einingu lands (L/ha), reyndist í flestum tilfellum marktækur munur á etanól uppskeru milli sláttutíma fyrir miðskriðtíma (H1 og H2) og svo eftir skrið (H3 og H4). Sveppurinn S. cerevisiae skilaði bestu skilvirkni etanól framleiðslunnar á öðrum sláttutíma (H2), alls 346 L/t þe. S. cerevisiae skilaði jafnframt mestri etanól framleiðslu umreiknað á einingu lands, eða 2.211 L/ha. Miðað við að á Íslandi sé mögulegt ræktarland til stórframleiðslu orkujurta um 420 km2, þá ætti að vera hægt að framleiða um 92,9 milljónir lítra af etanóli með þessari aðferð. Þá kom fram í verkefninu að leysanleiki vallarfoxgrass reyndist vera á bilinu 50-79%. Það þýðir að umtalsvert hrat verður til við framleiðsluna. Mikilvægt er að setja upp rannsóknir til að kanna hver möguleg afnot hratsins gætu verið og hvert áburðargildi þess er.

Author and committee

dc:creator, dc:contributor.*
Author dc:creator
  • Helgi Elí Hálfdánarson 1989-
Contributors dc:contributor
  • Landbúnaðarháskóli Íslands

Subjects

dc:subject × 5

Rights

Language dc:language.iso
is

Identifiers

dc:identifier.*
Handle dc:identifier.uri
http://hdl.handle.net/1946/22086
OAI identifier oai:identifier
oai:skemman.is:1946/22086

Chain of custody

source
Harvested from
Agricultural University of Iceland
Base URL
skemman.is/oai/request
Last updated
2026-07-27
Source record
OAI-PMH GetRecord
citation

Helgi Elí Hálfdánarson 1989-. Ethanol Production from Timothy (Phleum pratense L.). 2015. http://hdl.handle.net/1946/22086