Back to results

Agricultural University of Iceland

Hönnunarforsendur göngustíga: Áhrif landhalla, yfirborðslags og fyrirhugaðs álags á göngustígagerð

Abstract

dc:description.abstract

Gagnlegar upplýsingar og góð ráð í hönnun og uppbyggingu göngustíga skortir á Íslandi. Oftast er einungis treyst á vitneskju einstaklinga sem hafa unnið við stígagerð í mörg ár og öðlast þannig þekkingu á því hvað hentar við uppbyggingu stíga og hvað ekki. Skotar hafa þróað/byggt upp viðmið varðandi stígagerð út frá landhalla, yfirborðslagi og álagi sem nýtt eru við hönnun og uppbygginu stíga. Markmið þessa verkefnis felst í að svara eftirfarandi rannsóknarspurningum; Hvaða áhrif hefur landhalli, yfirborðslag og fyrirhugað álag á hönnunarforsendur göngustíga? Er hægt að yfirfæra erlend viðmið um uppbyggingu stíga yfir á íslenskar aðstæður? Er möguleiki á að nýta þessi viðmið við hönnun og/eða uppbyggingu á stígum við ferðamannastaði? Í vinnslu þessa verkefnis var gögnum um uppbyggingu stíga safnað saman og þau notuð til þess að tengja við sér íslenska þekkingu sem fengin var með því að skoða tvo ferðamannastaði á Suðurlandi, Þingvelli og Þórsmörk, og ræða við staðkunnuga. Loks eru viðmiðin nýtt við deiliteikningar á stígum á Hamragörðum og við Seljalandsfoss byggt á drögum af deiliskipulagi. Niðurstöður sýna að landhalli, yfirborðslag og álag hefur mikil áhrif á hönnun stíga sem endast lengi og þarfnast lítils viðhalds. Nýta má þekkingu Skota til að móta viðmið við íslenskar aðstæður með hliðsjón af landslagi, náttúru, jarðvegi. Hönnun með viðmið til hliðsjónar gefur markvissa niðurstöðu en mikilvægt er að hugsa um viðmið sem leiðbeiningar við ákveðna hönnun en ekki reglu. Aðstæður á þeim stað sem uppbygging á sér stað eiga alltaf að vera veigameiri þáttur í því hvernig við stöndum að hönnun og uppbyggingu göngustíga.

Author and committee

dc:creator, dc:contributor.*
Author dc:creator
  • Dagbjört Garðarsdóttir 1989-
Contributors dc:contributor
  • Landbúnaðarháskóli Íslands

Subjects

dc:subject × 10

Rights

Language dc:language.iso
is

Identifiers

dc:identifier.*
Handle dc:identifier.uri
http://hdl.handle.net/1946/22076
OAI identifier oai:identifier
oai:skemman.is:1946/22076

Chain of custody

source
Harvested from
Agricultural University of Iceland
Base URL
skemman.is/oai/request
Last updated
2026-07-27
Source record
OAI-PMH GetRecord
citation

Dagbjört Garðarsdóttir 1989-. Hönnunarforsendur göngustíga: Áhrif landhalla, yfirborðslags og fyrirhugaðs álags á göngustígagerð. 2015. http://hdl.handle.net/1946/22076