Back to results

Agricultural University of Iceland

Mismunandi aðferðir að venja kálfa af mjólk

Abstract

dc:description.abstract

Hérlendis er frjáls aðgangur að sýrðri mjólk að ná stigvaxandi vinsældum sem fóðrunaraðferð fyrir kálfa og þá sérstaklega eftir tilraunina sem Jóhannes Kristjánsson framkvæmdi árið 2014. Það hafa ekki verið gerðar tilraunir í sambandi við að venja kálfa af ótakmarkaðri sýrðri mjólk hérlendis, því var ákveðið útfrá vangaveltum sem komu upp í tilraun Jóhannesar að athuga hvernig best væri að fara að því að venja kálfa af mjólk án þess að það komi niður á vexti þeirra og heilbrigði. Við uppsetningu tilraunarinnar var kálfunum skipt upp í þrjár meðferðir til þess að geta borið saman hvaða meðferð kemur best út sambandi við vöxt og kjarnfóðurát kálfanna. Þar að leiðandi var skráð niður kjarnfóðurát hópanna, þungi kálfa og brjóstmál. Í hverri meðferð voru þrír hópar og tveir kálfar voru í hverjum hóp, samtals voru þetta 18 kálfar. Sjálft meðferðartímabilið var fjórar vikur, frá 8 vikna aldri til 12 vikna aldurs. Kálfar í meðferð 1 fengu tvo lítra af sýrðri mjólk einu sinni á dag í 7 daga, kálfar í meðferð 2 fengu tvo lítra af mjólk tvisvar á dag í 7 daga, síðan fengu kálfar í meðferð 3 þrjá lítra af mjólk einu sinni á dag í 7 daga. Allar meðferðir fengu frjálsan aðgang að heyi og kjarnfóðri, en kjarnfóðrið var vigtað inn og út til þess að skrá niður hvað kálfarnir átu. Að meðaltali þyngdust kálfar á meðferð 1 um 24 kg yfir þessar fjórar vikur og átu einnig mest af kjarnfóðri eða að meðaltali 1,9 kg á dag. Kálfar á meðferð 2 þyngdust að meðaltali um 22 kg og en átu minnst af kjarnfóðri að meðaltali, 1,6 kg á dag. Þeir kálfar sem voru á meðferð 3 þyngdust minnst eða um 21 kg yfir þessar fjórar vikur og átu næst mest af kjarnfóðri, 1,7 kg á dag. Hins vegar var ekki marktækur munur á milli meðferðanna svo ekki er hægt að álykta að ein meðferð sé betri en hinar þar sem þó nokkur munur var á milli hópa innan meðferða og einstaklingsbreytileiki var mikill.

Author and committee

dc:creator, dc:contributor.*
Author dc:creator
  • Sara Björk Þorsteinsdóttir 1989-
Contributors dc:contributor
  • Landbúnaðarháskóli Íslands

Subjects

dc:subject × 5

Rights

Language dc:language.iso
is

Identifiers

dc:identifier.*
Handle dc:identifier.uri
http://hdl.handle.net/1946/22074
OAI identifier oai:identifier
oai:skemman.is:1946/22074

Chain of custody

source
Harvested from
Agricultural University of Iceland
Base URL
skemman.is/oai/request
Last updated
2026-07-27
Source record
OAI-PMH GetRecord
citation

Sara Björk Þorsteinsdóttir 1989-. Mismunandi aðferðir að venja kálfa af mjólk. 2015. http://hdl.handle.net/1946/22074