Back to results

Agricultural University of Iceland

Byggfóðrun gemlinga

Abstract

dc:description.abstract

Verkefnið gekk út á að fóðra lambgimbrar með þrennum hætti og kanna hvort marktækar breytingar yrðu á þunga, holdastigun og frjósemi þeirra. Markmiðið var að kanna árangur og hagkvæmni þess að nota bygg fyrir gemlinga að vetri í samanburði við kjarnfóðurblöndu og heyfóður eingöngu. Fóðurmeðferðirnar voru þrjár; eingöngu hey, hey og kjarnfóðurblanda, hey og bygg og voru tilraunatímabilin frá 11. nóv. – 16. des. og aftur 3. feb. – 17. mars. Tilraunin var gerð á Hesti veturinn 2014-2015 og voru 120 ásetningsgimbrar notaðar í hana. Gimbrunum var skipt upp í 6 hópa með 20 gimbrum í hverjum hóp. Hópunum var deild á þrjár meðferðir, þannig að tveir hópar fengu hverja fóðurmeðferð eða 40 gimbrar. Kjarnfóðurblanda og bygg var skammtað samkvæmt áætlun og heyfóður vigtað að og frá á hverjum degi. Gimbrarnar voru vigtaðar reglulega og á seinna fóðrunartímabilinu var einnig holdastigað. Auk þess var fósturtalning gerð í lok febrúar. Marktækur munur (P<0,05) var á þungabreytingum og frjósemi gimbra eftir fóðurmeðferðum þar sem kjarnfóðurmeðferðin sýndi yfirburði yfir hinar meðferðirnar. Tölfræðipróf sýndu hinsvegar ekki marktækan mun (P>0,05) á holdastigsbreytingum né meðal þurrefnisheyáti milli fóðurmeðferða.

Author and committee

dc:creator, dc:contributor.*
Author dc:creator
  • Hrafnhildur Tíbrá Halldórsdóttir 1990-
Contributors dc:contributor
  • Landbúnaðarháskóli Íslands

Subjects

dc:subject × 4

Rights

Language dc:language.iso
is

Identifiers

dc:identifier.*
Handle dc:identifier.uri
http://hdl.handle.net/1946/22070
OAI identifier oai:identifier
oai:skemman.is:1946/22070

Chain of custody

source
Harvested from
Agricultural University of Iceland
Base URL
skemman.is/oai/request
Last updated
2026-07-27
Source record
OAI-PMH GetRecord
citation

Hrafnhildur Tíbrá Halldórsdóttir 1990-. Byggfóðrun gemlinga. 2015. http://hdl.handle.net/1946/22070