Back to results

Agricultural University of Iceland

Notkun prógesterónsprófs við beiðslisgreiningu og áhrif þess á frjósemi

Abstract

dc:description.abstract

Minnkandi frjósemi í mjólkurkúm er vaxandi áhyggjuefni og vandamál í heiminum öllum. Vísindamenn og bændur keppast við að komast til botns í því hvað veldur þessari miklu lækkun frjósemis. Þessi þróun hefur verið tengd við aukna nyt og neikvætt orkujafnvægi eftir burð. Ásamt því eru margir þættir sem geta valdið lélegri frjósemi líkt og sjúkdómar, sýkingar og stress og minnkandi beiðsliseinkenni sem leiða til þess að minni líkur eru á að bóndinn sæði kúna á réttum tíma. Í þessu verkefni er farið yfir líffræðilega og lífeðlisfræðilega þætti frjósemi og möguleika bóndans á að bæta beiðslisgreininguna. Í verkefninu var unnið með 186 mjólkurkýr og sæðingarsaga þeirra skoðuð. Prógesterónmælingar í mjólk voru notaðar sem beiðslisgreining. Fjöldi sæðinga, dagar á milli þeirra og dagar frá burði að fangi voru skoðaðir og bornir saman við samanburðartímabil frá árinu áður. Samkvæmt þessum samanburðartölum reyndist markviss notkun prógesterónprófs við beiðslisgreiningu hafa jákvæð áhrif á frjósemi í öllum tilfellum á búunum, nema þegar fjöldi daga á milli fyrstu og annarrar sæðingar var skoðaður.

Author and committee

dc:creator, dc:contributor.*
Author dc:creator
  • Aðalbjörg Rósa Indriðadóttir 1991-
Contributors dc:contributor
  • Landbúnaðarháskóli Íslands

Subjects

dc:subject × 5

Rights

Language dc:language.iso
is

Identifiers

dc:identifier.*
Handle dc:identifier.uri
http://hdl.handle.net/1946/22067
OAI identifier oai:identifier
oai:skemman.is:1946/22067

Chain of custody

source
Harvested from
Agricultural University of Iceland
Base URL
skemman.is/oai/request
Last updated
2026-07-27
Source record
OAI-PMH GetRecord
citation

Aðalbjörg Rósa Indriðadóttir 1991-. Notkun prógesterónsprófs við beiðslisgreiningu og áhrif þess á frjósemi. 2015. http://hdl.handle.net/1946/22067