Back to results

Agricultural University of Iceland

Endurnýting hafnarsvæða Mótun aðferðafræði fyrir skipulagsstefnu Flensborgarhafnar og annarra vannýttra hafnarsvæða

Abstract

dc:description.abstract

Undanfarna áratugi hafa hafnarsvæði við innri hafnir í borgum og bæjum um allan heim verið endurnýjuð, oft í tengslum við endurreisn miðbæja. Um er að ræða endurbætur á vannýttum og hnignandi svæðum, sem áður voru virk hafnar- eða iðnaðarsvæði. Þar sem vel hefur tekist til við endurgerð slíkra svæða eru þau nú iðandi af mannlífi og laða að íbúa og gesti, sem eiga þess kost að njóta þar ýmiss konar afþreyingar, útivistar, menningar og þjónustu. Endurbætur við innri hafnir hérlendis eru fyrirsjáanlegar, en hliðstæð þróun hefur aðeins átt sér stað að takmörkuðu leyti í íslenskum sjávarbyggðum. Tilgangur verkefnisins er að taka saman niðurstöður rannsókna á endurnýttum hafnarsvæðum erlendis, sem byggja má á við undirbúning stefnu og skipulags á áþekkum svæðum. Ennfremur að þróa og setja fram aðferð sem nota má við undirbúning hliðstæðra endurnýtingarverkefna og jafnframt að beita aðferðinni á vannýtt hafnar-svæði hér á landi. Aðferðin miðar að mótun skipulagsstefnu með frumdrögum fyrir svæðin. Í ritgerðinni er gerð grein fyrir hagnýtri úttekt á vannýttu hafnarsvæði við Flensborgarhöfn í Hafnarfirði, sem var rannsakað í þeim tilgangi að undirbyggja skipulagsstefnu fyrir svæðið. Rannsóknin byggðist á viðtölum, vettvangsferðum og greiningum byggðar, umhverfis og samfélags. Þannig fengust upplýsingar um áhrifaþætti sem varða framtíðaruppbyggingu svæðisins, einnig viðhorf sérfræðinga, embættismanna og notenda. Niðurstöður verkefnisins gáfu til kynna jákvæða áhersluþætti og gerð endurbyggingar á hafnarsvæðum sem hafa tekist vel með tilliti til ábata fyrir samfélagið sem svæðið heyrir til. Einnig voru líkur leiddar að hvaða þættir eru líklegir til að laða að mannlíf og athafnalíf á Flensborgarhöfn. Með niðurstöðunum skapaðist grunnur að stefnu um endurbætur athugunarsvæðisins, sem byggði á fyrri rannsóknum og reynslu, viðtölum og hagnýtri rannsókn á svæðinu. Í lok verkefnisins voru lagðar til útlínur að stefnu og umbótum á athugunarsvæðinu. Af verkefninu má draga þær ályktanir að ef vel er að endurnýtingu hafnarsvæða staðið, jafnt hér á landi sem erlendis, virðast þau vel til þess fallin að bjóða upp á umhverfi sem laðar að mannlíf, einkum ef svæðin eru staðsett við eða nálægt miðbæ og að nauðsynlegt sé að undirbyggja skipulagsstefnu fyrir svæði sem á að endurbæta til að ná fram því besta á hverjum stað.

Author and committee

dc:creator, dc:contributor.*
Author dc:creator
  • Guðrún Guðmundsdóttir 1956-
Contributors dc:contributor
  • Landbúnaðarháskóli Íslands

Subjects

dc:subject × 8

Rights

Language dc:language.iso
is

Identifiers

dc:identifier.*
Handle dc:identifier.uri
http://hdl.handle.net/1946/21563
OAI identifier oai:identifier
oai:skemman.is:1946/21563

Chain of custody

source
Harvested from
Agricultural University of Iceland
Base URL
skemman.is/oai/request
Last updated
2026-07-27
Source record
OAI-PMH GetRecord
citation

Guðrún Guðmundsdóttir 1956-. Endurnýting hafnarsvæða Mótun aðferðafræði fyrir skipulagsstefnu Flensborgarhafnar og annarra vannýttra hafnarsvæða. 2015. http://hdl.handle.net/1946/21563