Back to results

Agricultural University of Iceland

Atferli hesta á húsi: Áhrif undirlags á hvíldarhegðun

Abstract

dc:description.abstract

Markmiðið með þessari rannsókn var að kanna hvort gúmmíklæddir bitar væru fýsilegur kostur til þess að nota sem gólfgerð í hesthúsum með tilliti til velferðar hrossa. Hálmurinn var borin saman við notkun bitagólfa og varð fyrir valinu vegna þess að hann er framleiddur á Íslandi og krefst ekki innflutnings. Auk atferlis var einnig skoðað hvernig notkun þessa undirburðategunda hafði áhrif á daglegan rekstur (tíma og breytilegan kostnað). Tilraunin fór fram í hesthúsi á Akureyri sem hýsir sex hesta í rúmgóðum einstaklingsstíum. Svefnhegðun fjögurra hesta var tekin upp á myndband í tvær vikur. Tvær stíur voru í upprunalegu ástandi með bitagólf og tvær stíur voru þaktar hálmi. Hestarnir fengu eina viku aðlögunartíma að breyttu umhverfi. Til úrvinnslu voru annarsvegar upptökur skoðaðar og hinsvegar unnið úr skráningum sem umsjónarmaður fyllti út á tilraunatímabili. Niðurstöður sýndu að hestar virtust hvíla sig betur á hálmi vegna þess að flata legan var marktæk algengari á hálmi heldur en á bitum. Aldur hrossanna hafði áhrif á það hversu lengi þeir liggja en yngri hestar hafa meiri hvíldaþörf en eldri. Hestar urðu ekki óhreinni við notkun hálmsins, þrátt fyrir meiri legu. Dagleg vinna var meiri með notkun hálms. Þó að úrtak hefur verið lítið eru niðurstöður marktækar og gefa vísbending um að hugsa meira til hálmnotkunar í hestamennsku.

Author and committee

dc:creator, dc:contributor.*
Author dc:creator
  • Susanne Lintermann 1984-
Contributors dc:contributor
  • Landbúnaðarháskóli Íslands

Subjects

dc:subject × 4

Rights

Language dc:language.iso
is

Identifiers

dc:identifier.*
Handle dc:identifier.uri
http://hdl.handle.net/1946/20391
OAI identifier oai:identifier
oai:skemman.is:1946/20391

Chain of custody

source
Harvested from
Agricultural University of Iceland
Base URL
skemman.is/oai/request
Last updated
2026-07-27
Source record
OAI-PMH GetRecord
citation

Susanne Lintermann 1984-. Atferli hesta á húsi: Áhrif undirlags á hvíldarhegðun. 2015. http://hdl.handle.net/1946/20391