Agricultural University of Iceland
Miðbær á faraldsfæti : íbúakönnun og greining svæða í Hveragerði
Abstract
dc:description.abstractÍ góðu og vel skipulögðu umhverfi myndast vettvangur fyrir fjölbreytt mannlíf og möguleikar á mannlegum samskiptum skapast. Með bættu skipulagi aukast valfrjálsar athafnir þar sem svæðið og aðstæður gefa fólki tækifæri til að staldra við, setjast, borða og njóta lífsins. Tíðni nauðsynlegra athafna er sú sama. Ef gæði svæðanna eru mikil aukast athafnir fólks. Á götum og í borgarrýmum sem eru illa skipulögð flýtir fólk sér frekar heim. Því eiga sér aðeins nauðsynlegustu athafnir þar stað. Torg og framhliðar húsa hafa áhrif á gæði svæða og eru stór þáttur í upplifun gangandi vegfarenda um borgir. Meginmarkmið þessa verkefnis er að skoða hvar miðbær Hveragerðis er í hugum íbúa og skoða félagslegt atferli fólks þar, með kenningar arkitektsins Jan Gehl að leiðarljósi. Verkefnið er tvíþætt. Í fyrsta lagi var send út spurningakönnun á úrtak Hveragerðinga 15 ára og eldri, með það að markmiði að staðsetja miðbæ Hveragerðis. Í öðru lagi var unnin atferlisgreining á tveimur svæðum í bænum, en þau voru valin út frá niðustöðum könnunarinnar. Niðurstaða íbúakönnunarinnar er skýr. Að mati íbúa Hveragerðis er Breiðamörk miðbærinn. Í dag er Breiðamörk hönnuð fyrir bifreiðar með mörgum bílastæðum. Til að efla mannlíf í Hveragerði þá þarf göturýmið einnig að vera hannað fyrir fólk. Það er vandmeðfarið að hanna og skipuleggja góð göturými, hvað þá heilan miðbæ. Mikilvægt er að hugsa um götuna og rýmið sem eina heild og skipuleggja og hanna rýmið þannig að mannlíf aukist. Íbúar og ferðamenn þurfa að geta unað sér vel við götuna, gengið eða hjólað í rólegheitum, staldrað við, myndað tengsl og hvílt sig. Meginniðurstaða þessa verkefnis er að Breiðamörkin í heild sé í raun fyrir bíla þrátt fyrir að hún hafi komið hæst út úr íbúakönnun sem miðbær. Í raun má segja að nú séu tveir miðbæjarkjarnar í Hveragerði. Þrátt fyrir að svæði 1 sé fjölfarnara í heildina þá sýna mælingar örlítið meiri fjölbreytileika í athöfnum fólks á svæði 2. Fjöldi nn segir ekki til um gæði hvers svæðis um sig heldur er það fjölbreytileikinn í athöfnum fólks og að fólk dvelji á svæðinu. Gamli bærinn, svæði 1, er því víkjandi en svæði 2 er vaxandi miðbæjarsvæði. Niðurstaða atferligreiningarinnar er því sú að miðbærinn er að færast. Með tilkomu verslunarmiðstöðvar að Sunnumörk virðist sem stóru verslanakeðjurnar dragi miðbæinn niður eftir Breiðumörkinni. Í dag er gamli miðbærinn er í raun þjónustu- og stofnanasvæði og engin aðstaða fyrir valfrjálsar eða félagslegar athafnir. Svæði 2 er verslunar-, veitinga- og þjónustusvæði. Þar er svæði til hátíðahalda og skemmtana. Niðurstaða atferlisgreiningarinnar er sú að miðbærinn er að færast. Við Breiðumörkina endilanga eru stofnanir, þjónustufyrirtæki, veitingastaðir og verslanir. Því má segja að hún sé þungamiðja bæjarins enda fer nánast öll umferð inn og út úr bænum um hana. Hún er umgjörð daglegs lífs flestra íbúa og þar með eitt mikilvægasta svæði bæjarins. Æskilegt er að bæta gæði svæðanna fyrir íbúa og þá sem eiga leið þar um. Miðbæ íbúanna, eða götuna Breiðumörk, þarf að líta á sem stað til að njóta og dvelja á. Því þarf að reyna að bæta þá eiginleika sem hún hefur í dag til að uppfylla slíkar kröfur. Auka þarf starfsemi og bæta gróðurásýnd. Ein helsta forsenda fyrir lifandi miðbæ er blanda af miðbæjarstarfsemi og þéttri íbúðabyggð sem myndar hefðbundið bæjarrými.
Author and committee
dc:creator, dc:contributor.*- Author dc:creator
-
- Berglind Sigurðardóttir 1981-
- Contributors dc:contributor
-
- Landbúnaðarháskóli Íslands
Subjects
dc:subject × 3Rights
- Language dc:language.iso
- is
Identifiers
dc:identifier.*- Handle dc:identifier.uri
- http://hdl.handle.net/1946/18698
- OAI identifier oai:identifier
- oai:skemman.is:1946/18698