Agricultural University of Iceland
Hin undirliggjandi verðmæti : þróun lóðaverðs í Reykjavík 2000-2013
Abstract
dc:description.abstractLóðaverð hefur farið hækkandi síðastliðin ár og er orðin stór hluti af húsnæðisverði. Tveir helstu þættir sem hafa áhrif á lóðaverð eru staðsetning og skipulagsáætlanir þar sem stærð byggingar er skilgreind ásamt landnotkun. Það er því mikilvægt fyrir þá er vinna við gerð skipulagsáætlana að þeir geri sér grein fyrir þeim áhrifum sem ákvarðanir þeirra hafa, þar sem verðmyndandi þættir skipulags leysa úr læðingi hagræna hvata sem hafa áhrif á húsnæðismarkaðinn í heild sinni. Lóðaverð hefur lítið sem ekkert verið rannsakað hér á landi þrátt fyrir að vera undirliggjandi stærð í fasteignaverði. Engum gögnum er um það að fletta hvernig viðskipti með lóðir hafa þróast hér á landi. Aðra sögu er að segja um fasteignaviðskipti, en þar er gögnum safnað saman af opinberum aðila sem birtir reglulega samantektir. Þess vegna er farin sú leið hér að meta lóðaverð út frá fasteignaverði. Með því að meta byggingarkostnað og draga hann frá söluverði fasteigna er reynt að einangra lóðaverðið frá fasteignaverði. Í þessari ritgerð er farið yfir þróun lóðaverðs í Reykjavík frá aldamótum, 2000, til ársins 2013. Tímabilið er athyglisvert fyrir þær sakir að þar kemur inn bæði mikil hækkun og lækkun á fasteignaverði. Reynt verður að rýna í hvað gerðist þar. Ekki er síður athyglisvert að skoða hvernig áhrif staðsetningar á lóðaverð hefur breyst gríðarlega síðustu ár. Staðsetningin er nú orðin lykilþáttur í verðmyndun lóða. Það er mikilvægt að átta sig á þessum þáttum og hvernig lóðaverð þróast í hinu byggða umhverfi sem tekur sífelldum breytingum.
Author and committee
dc:creator, dc:contributor.*- Author dc:creator
-
- Gunnar Ágústsson 1986-
- Contributors dc:contributor
-
- Landbúnaðarháskóli Íslands
Subjects
dc:subject × 4Rights
- Language dc:language.iso
- is
Identifiers
dc:identifier.*- Handle dc:identifier.uri
- http://hdl.handle.net/1946/18688
- OAI identifier oai:identifier
- oai:skemman.is:1946/18688