Back to results

Agricultural University of Iceland

Heilsugarður fyrir almenning : hönnunartillaga

Abstract

dc:description.abstract

Með heilsueflingu er leitast við að efla heilbrigði með því að skapa fólki félagslegar, menningarlegar og efnahagslegar aðstæður og umhverfi sem gera einstaklingum og samfélaginu kleift að auka hreysti og efla vitund og vilja til að viðhalda heilbrigði. Verkefni þetta gengur út á að hanna heilsugarð á Kópavogstúni. Markmið þessa verkefnis er að vekja athygli á hugmyndafræði sem felur í sér að virkja almenning til að taka þátt í notkun og umönnun grænna svæða, bæði með og án aðstoðar leiðbeinanda. Hugmyndafræðin byggir á rannsóknum sem hafa verið framkvæmdar á áhrifum náttúru á fólk og á athugunum á því hvernig auðvelt aðgengi að grænum útivistarsvæðum hvetur fólk, sem á annað borð hefur löngun til að stunda útivist, til aukinnar hreyfingar og útiveru. Til að nálgast verkefnið voru skoðuð dæmi um erlenda heilsugarða sem Ulrika A. Stigsdotter og Patrik Grahn hafa haft umsjón með. Fjallað er um hugmyndafræðina á bak við uppbyggingu heilsugarða. Staða Kópavogstúns skoðuð og gerð grein fyrir núverandi stöðu svæðisins. Síðan farið í greiningarvinnu þar sem lögð er áhersla á þætti sem geta gert Kópavogstún að heilsugarði. Niðurstöður greiningar eru nýttar í tillögur að úrbótum á svæðinu. Hönnunartillögunni er ætlað að opna á þann möguleika að núverandi grænt svæði haldi sér og verði framhald af Kópavogsdal sem útivistarsvæði. Breytingar á svæðinu eiga að skapa jákvæð viðbrögð almennings til útivistar. og verða eðlilegur hluti af daglegu atferli. Þétting byggðar hefur þau áhrif að græn svæði blandast íbúðabyggð svo fólk geti leitað sér ómeðvitaðar endurnýjunar frá náttúrunni. Áhersla á að auka vægi gangandi og hjólandi vegfarenda um svæðið og skapa betri skilyrði fyrir fólk til að stunda útivist á grænum svæðum. Allar breytingar á svæðinu eiga að styrkja og efla tilveru þeirra sem nota svæðið.

Author and committee

dc:creator, dc:contributor.*
Author dc:creator
  • Kristján Sigurgeirsson 1965-
Contributors dc:contributor
  • Landbúnaðarháskóli Íslands

Subjects

dc:subject × 5

Rights

Language dc:language.iso
is

Identifiers

dc:identifier.*
Handle dc:identifier.uri
http://hdl.handle.net/1946/18678
OAI identifier oai:identifier
oai:skemman.is:1946/18678

Chain of custody

source
Harvested from
Agricultural University of Iceland
Base URL
skemman.is/oai/request
Last updated
2026-07-27
Source record
OAI-PMH GetRecord
citation

Kristján Sigurgeirsson 1965-. Heilsugarður fyrir almenning : hönnunartillaga. 2014. http://hdl.handle.net/1946/18678