Back to results

Agricultural University of Iceland

Nýr dómskali fyrir mat á skapgerð íslenskra kúa

Abstract

dc:description.abstract

Skapgerð kúa er einn þeirra eiginleika sem skipta orðið sífellt meira máli með breyttum aðstæðum í nautgriparækt þar sem góð skapgerð er mikilvæg fyrir daglega umgengni og vinnu við kýrnar. Dómstiginn sem notaður er til að meta skapgerð íslensku kýrinnar er of almennt skilgreindur sem gerir kynbætur á skapinu erfiðari. Meginmarkmið þessa verkefnis var því að endurskoða og bæta dómstigann sem notaður er til að meta skapgerð kúnna með það að markmiði að eiginleikinn nýtist betur við kynbætur. Útbúinn var dómstigi, sem byggir á hugmyndum Nýsjálendinga, með þremur eiginleikum; annars vegar skapeiginleikunum aðlögun að mjöltum og fjóshegðun og hins vegar heildarmati sem tekur almennt til gæða kúnna. Bændur voru beðnir um að meta fyrsta kálfs kvígur sínar með tilliti til eiginleikanna og fengust upplýsingar um 2.684 kvígur. Niðurstöður útreikninga á erfðastuðlum fyrir skapeiginleikana leiddu í ljós arfgengi (aðlögun að mjöltum: 0,103 og fjóshegðun: 0,125) sem er svipað því arfgengi sem notað er við kynbætur á skapi í núverandi kerfi (0,13). Erfðafylgni milli aðlögunar og fjóshegðunar (0,997) gefur til kynna að þetta séu sömu eiginleikarnir erfðalega séð og því dygði að velja aðeins fyrir öðrum eiginleikanum í kynbótum. Arfgengi heildarmats (0,107) er nærri helmingi lægra heldur en arfgengi gæðaraðar, sem tekur til gæða kúnna í núverandi kerfi, og því á eiginleikinn ekki erindi inn í ræktunarstarfið. Niðurstöður sýndu að skalinn fyrir aðlögun að mjöltum er of þröngt skilgreindur og náði því ekki að meta raunverulegan breytileika eiginleikans. Auk þess benda niðurstöður til þess að ef ná á yfir sem mestan breytileika í skapgerð þyrfti að bæta við einum eiginleika í viðbót sem tæki á mætingu kúnna í mjaltir í mjaltaþjónafjósum, en bændur bentu á að þessi eiginleiki skipti verulegu máli upp á vinnuþörf í fjósunum.

Author and committee

dc:creator, dc:contributor.*
Author dc:creator
  • Hafþór Finnbogason 1991-
Contributors dc:contributor
  • Landbúnaðarháskóli Íslands

Subjects

dc:subject × 6

Rights

Language dc:language.iso
is

Identifiers

dc:identifier.*
Handle dc:identifier.uri
http://hdl.handle.net/1946/18665
OAI identifier oai:identifier
oai:skemman.is:1946/18665

Chain of custody

source
Harvested from
Agricultural University of Iceland
Base URL
skemman.is/oai/request
Last updated
2026-07-27
Source record
OAI-PMH GetRecord
citation

Hafþór Finnbogason 1991-. Nýr dómskali fyrir mat á skapgerð íslenskra kúa. 2014. http://hdl.handle.net/1946/18665