Back to results

Agricultural University of Iceland

Söluverðmæti íslenskra hrossa: Athugun á verðmætasköpun við sölu á íslenskum hrossum

Abstract

dc:description.abstract

Helsta takmark búfjárræktar er að auka arðsemi ræktunarstofnsins með því að bæta eiginleika hans. Engar rannsóknir hafa verið gerðar á því hvaða eiginleikar íslenskra hrossa eru verðmætastir í ræktun. Markmið rannsóknar þessarar var tvíþætt; Fyrsta markmið rannsóknarinnar var að safna gögnum um eiginleika og söluverð einstakra hrossa til að meta hvernig mismunandi eiginleikar hafa áhrif á verð. Annað markmið rannsóknarinnar var að kanna hagfræðilegt vægi þeirra eiginleika sem eru innifaldir í kynbótamati fyrir íslensk hross og bera saman hagfræðilegt vægi og núverandi vægi þessara eiginleika Rannsóknin fór þannig fram að gögnum var safnað frá hrossabændum víðs vegar um land um seld hross á árunum 2006-2009. Upplýsingar fengust um 237 hross. Send voru út eyðublöð til útfyllingar, eitt fyrir hvert selt hross, þar sem ræktendur gáfu seldum hrossum einkunn fyrir gangtegundir og sköpulag. Einnig var safnað upplýsingum um aldur, kyn, lit, hvort hrossið var selt innanlands eða erlendis, hvort hestar voru stóðhestar eða geldingar, hver BLUP einkunn hrossanna var, hvort þau voru sýnd eða ekki og hvort þau höfðu tekið þátt í keppni eða ekki, hvort þau voru tamin eða ekki, hvernig skapgerðareiginleikar hestsins voru, fjölda mánaða í tamningu, kynbótadómseinkunn föður og móður ásamt kynbótadómseinkunn einstaklinga sem voru sýndir. Niðurstöður verðlagsgreiningar sýndu að búaáhrif voru langstærsti áhrifavaldur á verð hrossa. Brokk, vilji og geðslag, háls, herðar og bógar og BLUP einkunn höfðu jákvæð áhrif á verð, ásamt því að stóðhestar voru verðlagðir hærra en hryssur og geldingar. Aldur við sölu hafði jákvæð áhrif á verð sýndra hrossa en neikvæð áhrif á verð ósýndra hrossa. Niðurstöður hagfræðigreiningar benda til þess að sköpulag í kynbótadómi eigi að gilda minna en verið hefur, og jafnframt að kostir eigi að gilda meira en verið hefur.

Author and committee

dc:creator, dc:contributor.*
Author dc:creator
  • Sigríður Ólafsdóttir 1982-
Contributors dc:contributor
  • Landbúnaðarháskóli Íslands

Subjects

dc:subject × 6

Rights

Language dc:language.iso
is

Identifiers

dc:identifier.*
Handle dc:identifier.uri
http://hdl.handle.net/1946/16761
OAI identifier oai:identifier
oai:skemman.is:1946/16761

Chain of custody

source
Harvested from
Agricultural University of Iceland
Base URL
skemman.is/oai/request
Last updated
2026-07-27
Source record
OAI-PMH GetRecord
citation

Sigríður Ólafsdóttir 1982-. Söluverðmæti íslenskra hrossa: Athugun á verðmætasköpun við sölu á íslenskum hrossum. 2013. http://hdl.handle.net/1946/16761