Back to results

Agricultural University of Iceland

Lífshættir flundru (Platichthys flesus) á ósasvæði Hvítár í Borgarfirði

Abstract

dc:description.abstract

Með hækkandi sjávarhita hefur nýjum fisktegundum í hafinu umhverfis Íslands fjölgað. Á undanförnum árum virðast fjórar nýjar tegundir hafa náð fótfestu hérlendis steinsuga (Petromyzon marinus), sandrækja (Crangon crangon), grjótkrabbi (Cancer irroratus) og flundra (Platichthys flesus), sem einnig nýtir búsvæði í árósum og ferskvatni á hluta lífsferilsins, en tegundin var fyrst greind á Íslandi árið 1999. Markmið rannsóknarinnar var að kanna útbreiðslu flundru við Ísland, og lífshætti flundru á vatnasvæði Hvítár í Borgarfirði ásamt umhverfisþáttum; (1) landnám var kannað með heimildaleit og spurningalista til veiðifélaga (2) rannsökuð var, stærðarsamsetning, aldur, vöxtur, kynjahlutfall, kynþroski, fæða og fæðuval flundrunnar á þremur stöðvum á ósasvæði Hvítár (3) umhverfisþættir voru mældir, hitastig á mælistöðum, selta, auk athugana á búsvæðum (4) gerður var samanburður á fæðu laxfiska (Salmonidae) og flundru. Rannsóknin fór fram á tímabilinumaí – september 2011 auk þess voru notuð gögn frá Veiðimálastofnun sem safnað var árið 2010. Göngur flundrunnar inná ósasvæðið fóru eftir árstíðum, lítið var af fiski um vorið en jókst er leið á haustið. Geldfiskur var ríkjandi er ofar dró í ósnum. Kynþroska fiskur gekk utar um haustið, en geldfiskar urðu eftir. Aldur flundrunnar spannaði frá 0+ til 8+ (vorgömul seiði- flundru á níunda ári) og hrygnur voru algengari í eldri aldurshópum. Flundrurnar voru á lengdarbilinu 8-42 cm. Mikill breytileiki kom fram í fæðu flundrunnar eftir stöðvum. marflær (Gammarus spp) voru ríkjandi í fæðu flundru í ísöltu vatni, einnig bar nokkuð á silungaseiðum og fiskleifum. Fæðuval flundru í sjó var fjölbreyttara, helstu fæðugerðir voru skeldýr (Bivalvia), marflær, sandmaðkur (Arencolamarina ), trönusíli (Hyperoplus lanceolatus) og fiskleifar. Einnig fundust laxaseiði í magasýnum flundru í Andakílsá. Flundra er því ósérhæfð í fæðuvali. Flundra er afræningi á fiskum, m.a. laxfiskum, og fæðuval flundru og laxfiska skarast að töluverðu leyti, t.d. ögnum, marfló og trönusíli. Samkeppni ríkir því að einhverju leyti um fæðuna á ósasvæði Hvítár milli flundru og laxfiska. Samkvæmt könnuninni nær útbreiðsla flundrunnar nú frá Breiðdalsvík að austanverðu, réttsælis með landinu og norður í Skagafjörð. Flundran virðist ekki hafa numið land frá norðanverðum Skagafirði að Breiðdalsvík.

Author and committee

dc:creator, dc:contributor.*
Author dc:creator
  • Ásgeir Valdimar Hlinason 1964-
Contributors dc:contributor
  • Landbúnaðarháskóli Íslands

Subjects

dc:subject × 4

Rights

Language dc:language.iso
is

Identifiers

dc:identifier.*
Handle dc:identifier.uri
http://hdl.handle.net/1946/16760
OAI identifier oai:identifier
oai:skemman.is:1946/16760

Chain of custody

source
Harvested from
Agricultural University of Iceland
Base URL
skemman.is/oai/request
Last updated
2026-07-27
Source record
OAI-PMH GetRecord
citation

Ásgeir Valdimar Hlinason 1964-. Lífshættir flundru (Platichthys flesus) á ósasvæði Hvítár í Borgarfirði. 2013. http://hdl.handle.net/1946/16760