Back to results

Agricultural University of Iceland

Urðun úrgangs - mat á aðstöðu fjögurra urðunarstaða á Íslandi

Abstract

dc:description.abstract

Urðun er aðalförgunarleiðin á Íslandi í dag, og 31 staðir hafa starfsleyfi fyrir urðun á úrgangi í ýmsum flokkum. Ljóst er að förgun úrgangs verður með öðru móti í framtíðinni, því að fyrir 16. júlí 2009 eiga urðunarstaðir að uppfylla lagaleg ákvæði sem voru sett árið 2003. Markmið ritgerðarinnar er að fá yfirlit yfir stöðu urðunarmála á Íslandi og að gefa yfirsýn yfir það hvernig aðstaðan er til urðunar í dag. Tekið var saman hver séu helstu neikvæðu áhrifin á umhverfið sem stafa frá urðun ásamt lagaumhverfi urðunar. Litið var á aðstöðu fjögurra stærstu urðunarstaðanna á Íslandi með því að fá svör hjá þeim um uppbyggingu og rekstur þeirra með tilliti til krafa sem til þeirra eru gerðar í reglugerð um urðun úrgangs nr. 738/2003. Þessir staðir eru á Álfsnesi, í Kirkjuferjuhjáleigu, í Glerárdal og á Fíflholti. Niðurstöður benda til þess að íslenskir urðunarstaðir uppfylla lagalegar kröfur að miklu leyti og því má álykta að aðstaðan til urðunar sé góð á Íslandi. Mengun í sigvatni frá stöðunum hefur ekki mælst yfir mörk starfsleyfanna, en verulega vantar upp á skilgreind viðmiðunarmörk styrks þeirra efna sem fara út í umhverfið. Allmikið er um hauggaslosun frá stöðunum, en Sorpa bs. á Álfsnesi er eina fyrirtækið sem safnar og nýtir gasið. Enginn staður uppfyllir að fullu kröfur um móttöku úrgangs. Urðun mun einungis halda áfram á Álfsnesi og Fíflholti eftir árið 2009. Urðunarstaðurinn í Kirkjuferjuhjáleigu verður lokað 1. desember 2009. Þá verður blandaður úrgangur sem ekki er flokkaður til endurvinnslu ekið til urðunar í Álfsnesi. Um nokkurra ára skeið hefur staðið yfir leit að svæði fyrir nýjan urðunarstað í Eyjafirði, en ákveðið hefur verið að loka núverandi urðunarstað í Glerárdal innan 1–3 ára. Séð er fram á mjög mikið og kostnaðarsamt starf til þess að öll reglugerðarákvæði verði uppfyllt, ásamt því að ábyrgð framleiðenda verði þá hert til muna. Að aðlagast nýjum kröfum af þessu tagi tekur tíma, en Ísland er þó vel á veg komið með það.

Author and committee

dc:creator, dc:contributor.*
Author dc:creator
  • Berglind Ósk Þ. Þórólfsdóttir 1986-
Contributors dc:contributor
  • Landbúnaðarháskóli Íslands

Subjects

dc:subject × 4

Rights

Language dc:language.iso
is

Identifiers

dc:identifier.*
Handle dc:identifier.uri
http://hdl.handle.net/1946/16523
OAI identifier oai:identifier
oai:skemman.is:1946/16523

Chain of custody

source
Harvested from
Agricultural University of Iceland
Base URL
skemman.is/oai/request
Last updated
2026-07-27
Source record
OAI-PMH GetRecord
citation

Berglind Ósk Þ. Þórólfsdóttir 1986-. Urðun úrgangs - mat á aðstöðu fjögurra urðunarstaða á Íslandi. 2013. http://hdl.handle.net/1946/16523