Abstract
dc:description.abstractMarkmiðið verkefnisins er þríþætt; í fyrsta lagi að greina hvað felst í góðum miðbæ, í öðru lagi að greina stöðu, einkenni og eiginleika miðbæjar Kópavogs og í þriðja lagi að leita leiða til þess að styrkja og efla miðbæ Kópavogs svo íbúar bæjarins geti upplifað sannkallaða miðbæjarstemningu í mannvænu umhverfi. Til að nálgast verkefnið voru rannsóknir danska prófessorsins og arkitektsins Jan Gehl skoðaðar. Staða svæðisins eins og hún er í dag var skoðuð og síðan var farið í greiningarvinnu þar sem lögð var áhersla á þætti sem bæta mannlíf miðbæjarins. Niðurstöður greiningar voru nýttar í tillögur að úrbótum á svæðinu. Hönnunartillagan gerir ráð fyrir að styrkja almenningsrýmin sem fyrir eru á svæðinu og einnig er lögð fram tillaga að þéttingu byggðar. Lögð er áhersla á að auka vægi gangandi og hjólandi vegfarenda, draga úr vægi bifreiða innan miðbæjarins og skapa betri skilyrði fyrir fólk. Allar breytingar á svæðinu eiga að styrkja miðbæjarsvæðið og efla mannlíf miðbæjarins.
Author and committee
dc:creator, dc:contributor.*- Author dc:creator
-
- Hrönn Valdimarsdóttir 1988-
- Contributors dc:contributor
-
- Landbúnaðarháskóli Íslands
Subjects
dc:subject × 3Rights
- Language dc:language.iso
- is
Identifiers
dc:identifier.*- Handle dc:identifier.uri
- http://hdl.handle.net/1946/15581
- OAI identifier oai:identifier
- oai:skemman.is:1946/15581