Back to results

Agricultural University of Iceland

Miðbæjarstemning í Kópavogi

Abstract

dc:description.abstract

Markmiðið verkefnisins er þríþætt; í fyrsta lagi að greina hvað felst í góðum miðbæ, í öðru lagi að greina stöðu, einkenni og eiginleika miðbæjar Kópavogs og í þriðja lagi að leita leiða til þess að styrkja og efla miðbæ Kópavogs svo íbúar bæjarins geti upplifað sannkallaða miðbæjarstemningu í mannvænu umhverfi. Til að nálgast verkefnið voru rannsóknir danska prófessorsins og arkitektsins Jan Gehl skoðaðar. Staða svæðisins eins og hún er í dag var skoðuð og síðan var farið í greiningarvinnu þar sem lögð var áhersla á þætti sem bæta mannlíf miðbæjarins. Niðurstöður greiningar voru nýttar í tillögur að úrbótum á svæðinu. Hönnunartillagan gerir ráð fyrir að styrkja almenningsrýmin sem fyrir eru á svæðinu og einnig er lögð fram tillaga að þéttingu byggðar. Lögð er áhersla á að auka vægi gangandi og hjólandi vegfarenda, draga úr vægi bifreiða innan miðbæjarins og skapa betri skilyrði fyrir fólk. Allar breytingar á svæðinu eiga að styrkja miðbæjarsvæðið og efla mannlíf miðbæjarins.

Author and committee

dc:creator, dc:contributor.*
Author dc:creator
  • Hrönn Valdimarsdóttir 1988-
Contributors dc:contributor
  • Landbúnaðarháskóli Íslands

Subjects

dc:subject × 3

Rights

Language dc:language.iso
is

Identifiers

dc:identifier.*
Handle dc:identifier.uri
http://hdl.handle.net/1946/15581
OAI identifier oai:identifier
oai:skemman.is:1946/15581

Chain of custody

source
Harvested from
Agricultural University of Iceland
Base URL
skemman.is/oai/request
Last updated
2026-07-27
Source record
OAI-PMH GetRecord
citation

Hrönn Valdimarsdóttir 1988-. Miðbæjarstemning í Kópavogi. 2013. http://hdl.handle.net/1946/15581