Back to results

Agricultural University of Iceland

Þekking og notkun á örnefnum : Könnun gerð meðal sambýlisfólks í Hvítársíðu.

Abstract

dc:description.abstract

Markmið þessa verkefnis var tvíþætt. Annars vegar var könnuð þekking ábúenda á örnefnum á eigin landareign og þekkingarmunur sambýlisfólks, þar sem annar aðilinn er aðfluttur en hinn alinn upp á viðkomandi jörð. Hinsvegar var kannað hvort örnefni væru enn að verða til og hver væri helsta ógn örnefnanna að mati viðmælanda. Könnunin var framkvæmd í Hvítársíðu í Borgarfirði og tóku átta pör á sjö bæjum þátt. Valin voru af handahófi 25 örnefni úr örnefnaskrá hverrar jarðar fyrir sig og lögð fyrir þátttakendur sem greindu frá hvort þeir þekktu örnefnið eða ekki. Auk þess svöruðu viðmælendur fimm spurningum um örnefni og örnefnanotkun. Niðurstöður könnunarinnar voru að enginn þekkti öll örnefnin og enginn minna en helming þeirra sem um var spurt. Í fæstum tilfellum var mikill þekkingarmunur milli sambýlisfólks. Niðurstöðurnar voru ekki afgerandi um að innfæddir þekktu örnefnin betur en aðfluttir þó það hafi verið svo í flestum tilfellum. Þeir sem þekktu bæði flest og fæst örnefnin voru aðfluttir. Aðrar niðurstöðurnar sýna að helsta notkun örnefna er tengd þeim búskap og þeirri landnotkun sem er á hverjum bæ fyrir sig. Örnefni eru enn að verða til og flestir þekkja sögu um tilkomu örnefnis. Nefndar voru margar ástæður þess að örnefni væru að glatast, m.a. vegna breytinga af völdum manna og náttúru auk þess að minni umferð sé um landið í dag en var áður fyrr.

Author and committee

dc:creator, dc:contributor.*
Author dc:creator
  • Elsa Þorbjarnardóttir 1990-
Contributors dc:contributor
  • Landbúnaðarháskóli Íslands

Subjects

dc:subject × 3

Rights

Language dc:language.iso
is

Identifiers

dc:identifier.*
Handle dc:identifier.uri
http://hdl.handle.net/1946/15574
OAI identifier oai:identifier
oai:skemman.is:1946/15574

Chain of custody

source
Harvested from
Agricultural University of Iceland
Base URL
skemman.is/oai/request
Last updated
2026-07-27
Source record
OAI-PMH GetRecord
citation

Elsa Þorbjarnardóttir 1990-. Þekking og notkun á örnefnum : Könnun gerð meðal sambýlisfólks í Hvítársíðu.. 2013. http://hdl.handle.net/1946/15574