Back to results

Agricultural University of Iceland

Möguleikar á nýtingu sjávarvatns sem áburðagjafa.

Abstract

dc:description.abstract

Sjór er steinefnaríkur og því spurning hvort hægt sé að nýta hann sem áburðargjafa. Þar sem sjór flæðir reglulega yfir er mikil frjósemi og gróska í gróðrinum. Eftirsótt bæði til beitar, fóðuröflunar öldum saman og nú til heyfengs fyrir lífræna ræktun. Með stöðugri áveitu getur selta safnast upp í jarðveginum og gert hann ófrjósaman, en það á helst við þar sem þurrt er og lítið er um vætu. Þau svæði sem sjór flæðir yfir hér á landi verða ekki ófrjósöm, þau halda frjósemi sinni. Hér er næg úrkoma til þess að regluleg útskolun verði úr jarðveginum, sem kemur í veg fyrir uppsöfnun NaCl. Með sjó sem áburðargjafa getum við nýtt okkur ódýra viðbót í áburðaflóruna. Að Neðri-Hálsi í Kjós hafa 3 t ha-1 af sjó verið borin á í tvö ár og hefur að mati bónda gefið góða raun. Þar sem engin rannsókn liggur að baki hans nýtingu á sjó sem áburð var farið í rannsókn til að kanna hvort sjór gæti aukið uppskeru og steinefnamagn í fóðri. Einföld tilraun með sjó var gerð á tveimur stöðum, á Hvammi í Hvítársíðu og Hesti í Borgarfirði. Bornir voru á 0,3 og 1,0 l m-2 (samsvarar 3 og 10 t ha-1) af sjó og áhrif á uppskeru var kannaður. Enginn munur var milli meðferða, þannig að nýting sjávar sem áburðar hafði hvorki jákvæð né neikvæð áhrif á uppskerumagn eða fóðurgæði. Þó var Na innihals örlítið hærra í liðum sem fengu sjó. Sumarið 2012, þegar tilraunin fór fram, var með eindæmum þurrt og mun eflaust hafa komið niður á upptöku næringarefna og haft áhrif á uppskeru.

Author and committee

dc:creator, dc:contributor.*
Author dc:creator
  • Fjóla Veronika Guðjónsdóttir 1971-
Contributors dc:contributor
  • Landbúnaðarháskóli Íslands

Subjects

dc:subject × 4

Rights

Language dc:language.iso
is

Identifiers

dc:identifier.*
Handle dc:identifier.uri
http://hdl.handle.net/1946/15570
OAI identifier oai:identifier
oai:skemman.is:1946/15570

Chain of custody

source
Harvested from
Agricultural University of Iceland
Base URL
skemman.is/oai/request
Last updated
2026-07-27
Source record
OAI-PMH GetRecord
citation

Fjóla Veronika Guðjónsdóttir 1971-. Möguleikar á nýtingu sjávarvatns sem áburðagjafa.. 2013. http://hdl.handle.net/1946/15570