Back to results

Agricultural University of Iceland

Ræktun múltuberja (Rubus chamaemorus L) á Íslandi.

Abstract

dc:description.abstract

Markmið verkefnisins var að athuga hvort múltuberjaplantan (Rubus chamaemorus L) gæti lifað, blómstrað og myndað ber á Íslandi og hvaða áhrif mismunandi jarðvegur og umhverfi hefðu á vöxt og lifun plantnanna. Tvö mismunadi afbrigði voru prófuð í tilraun, eitt kvenkyns (Fjellgull) og eitt karlkyns (Apollen), og einnig var athugað hvort munur væri á vexti og blómgun þeirra. Tilraunin var gerð í landi Böðmóðsstaða í Laugardal, Bláskógabyggð, sem tilheyrir uppsveitum Árnessýslu á Suðurlandi. Tvö svæði (Svæði 1 og Svæði 2) voru valin, hvoru tveggja í framræstu mýrlendi, en með mismunandi jarðvegsraka og gróðurfari. Tilraunin var gerð á tímabilinu 2010-2012. Næringarinnihald jarðvegs, vatnsstaða jarðvegs, jarðvegshiti og veðurfar var athugað á tilraunatímabilinu. Þróttur plantna var metinn fjórum sinnum yfir sumurin 2011 og 2012, auk þess var fjöldi nýrra sprota skráður vorið 2012. Einnig var fjöldi blóma skráður bæði sumurin og fylgst með því hvort ber mynduðust. Helstu niðurstöðurnar voru að múltuber (Rubus chamaemorus L) geta lifað og myndað blóm á Íslandi. Plönturnar lifðu betur og mynduðu fleiri sprota og blóm á Svæði 1 sem er þurrara og skjólbetra svæði en Svæði 2. Töluverður munur var á milli afbrigða á báðum svæðunum.

Author and committee

dc:creator, dc:contributor.*
Author dc:creator
  • Maria Cecilie Wang 1964-
Contributors dc:contributor
  • Landbúnaðarháskóli Íslands

Subjects

dc:subject × 3

Rights

Language dc:language.iso
is

Identifiers

dc:identifier.*
Handle dc:identifier.uri
http://hdl.handle.net/1946/15569
OAI identifier oai:identifier
oai:skemman.is:1946/15569

Chain of custody

source
Harvested from
Agricultural University of Iceland
Base URL
skemman.is/oai/request
Last updated
2026-07-27
Source record
OAI-PMH GetRecord
citation

Maria Cecilie Wang 1964-. Ræktun múltuberja (Rubus chamaemorus L) á Íslandi.. 2013. http://hdl.handle.net/1946/15569