Back to results

Agricultural University of Iceland

Comparing biodiversity of birds in different habitats in South Iceland

Abstract

dc:description.abstract

Í ljósi aukinnar landnýtingar og hnignunar líffræðilegrar fjölbreytni er afar brýnt að auka þekkingu á henni bæði til að nýta við skipulagsgerð og við verndaráætlanir. Nauðsynlegt er að greina á sem skjótastan hátt þau búsvæði sem mikilvægust eru fyrir líffræðilega fjölbreytni til að minnka neikvæð áhrif landnýtingar. Þekking á líffræðilegri fjölbreytni á Íslandi er brotakennd og ófullnægjandi, sérstaklega þegar horft er til hraða landbreytinga síðustu áratugi. Í þessari rannsókn voru vettvangsmælingar á fuglum á láglendi Suðurlands, sem er alþjóðlega mikilvægt fyrir ýmsar fuglategundir, bornar saman við landflokka í Nytjalandsgagnagrunni Landbúnaðarháskóla Íslands til að greina tengsl líffræðilegrar fjölbreytni fugla við mismunandi gróðurbúsvæði. Athuganir voru gerðar á fimm algengustu gróðurbúsvæðum Suðurlands, fyrir utan ræktað land. Þessi búsvæði voru votlendi, hálfdeigja, ríkt mólendi, graslendi og rýrt mólendi. Í heildina voru skráðir 5128 fuglar af 22 tegundum, 95% þessara fugla voru af átta tegundum, sjö vaðfuglar og þúfutittlingur (Anthus pratensis). Af þessum átta tegundum voru fimm (lóuþræll (Calidris alpina), hrossagaukur (Gallinago gallinago), spói (Numenius phaeopus), jaðrakan (Limosa limosa) og þúfutittlingur) með hæstan þéttleika í votlendi. Tjaldur (Haematopus ostralegus) og stelkur (Tringa totanus) voru með hæstan þéttleika í graslendi en mest var af heiðlóu (Pluvialis apricaria) í rýru mólendi. Heildarþéttleiki þessara átta tegunda í fimm búsvæðum var frá 274 fuglum á km2 í rýru mólendi til 640 fugla á km2 í votlendi. Mælingar á fuglalífi á láglendi Suðurlands benda til þess að almennt séu blautari búsvæði mikilvægari en þurrari, það var hærri þéttleiki og hærri meðalfjöldi tegunda í búsvæði. Nytjaland sýndi skýr tengls við fuglalíf og virðist henta vel sem grunnur undir kortlagningu líffræðilegrar fjölbreytni.

Author and committee

dc:creator, dc:contributor.*
Author dc:creator
  • Lilja Jóhannesdóttir 1981-
Contributors dc:contributor
  • Landbúnaðarháskóli Íslands

Subjects

dc:subject × 7

Rights

Language dc:language.iso
en

Identifiers

dc:identifier.*
Handle dc:identifier.uri
http://hdl.handle.net/1946/14964
OAI identifier oai:identifier
oai:skemman.is:1946/14964

Chain of custody

source
Harvested from
Agricultural University of Iceland
Base URL
skemman.is/oai/request
Last updated
2026-07-27
Source record
OAI-PMH GetRecord
citation

Lilja Jóhannesdóttir 1981-. Comparing biodiversity of birds in different habitats in South Iceland. 2013. http://hdl.handle.net/1946/14964