Back to results

Agricultural University of Iceland

Blöndun íbúðabyggðar og atvinnusvæða á höfuðborgarsvæðinu. Hugmyndafræði og skipulagsframkvæmd

Abstract

dc:description.abstract

Reykjavík og höfuðborgarsvæðið hefur byggst upp að mestu frá miðri síðustu öld og skipulag þess ber sterk einkenni modernisma í skipulagsgerð, þar sem landnotkun er aðgreind með skýrum hætti, einkum íbúðarsvæði frá atvinnusvæðum. Síðasta áratug hefur stefna um svokallaða blandaða byggð, það er um blandaða landnotkun íbúðarsvæða og atvinnustarfsemi orðið meira áberandi í aðalskipulagsstefnu sveitarfélaganna á höfuðborgarsvæðinu. Endurspeglar það ríkjandi skipul agshugmyndir í Evrópu og vestanhafs. Í aðalskipulagsstefnu er blönduð landnotkun meðal annars talin stuðla að styttri vegalengdum milli heimila og vinnustaða og þjónustu og þannig geta dregið úr ferðaþörf og bílanotkun en einnig skapað líflegri borgarbrag. Þá er heimil blöndun íbúðarsvæða og atvinnustarfsemi talin geta stuðlað að bættri nýtingu svæða og húsnæðis sem er vannýtt og hentar ekki lengur undir þá starfsemi sem þar var áður. Blandaðri byggð er hampað sem áhrifaríkri leið til að ná markmiðum sjálfbærrar þróunar. Rannsóknin felst í að kynna hugmyndafræðilegan bakgrunn skipulagsstefnunnar um blöndun íbúða og atvinnustarfsemi. Hugtakið blönduð landnotkun er skilgreint og skýrt með hjálp greiningarramma þar sem mælikvarði, vídd og samsetning er lýst. Þá er aðslskipulagsstefna í þremur sveitarfélögum á höfuðborgarsvæðinu skoðuð og framfylgd og framgangur hennar rannsakaður með hagnýtum úttektum á þremur deiliskipulagssvæðum þar sem blönduð landnotkun hefur verið útfærð. Rannsóknin leiðir í ljós að skipulagsyfirvöld eru jákvæð gagnvart hugmyndum um aukna blöndun byggðar, en framfylgdin er þrátt fyrir það fremur veik. Fjölmargar hindranir eru í veginum þegar stefnan er útfærð. Íbúðir geta hamlað atvinnustarfsemi á eldri atvinnusvæðum. Erfitt er að meta forsendur um eftirspurn eftir atvinnuhúsnæði í nýjum hverfum, einkum í útjaðri byggðar. Mikið framboð er af svæðum og lóðum skipulögðum fyrir atvinnustarfsemi miðsvæðis í Reykjavík, sem dregur úr möguleikum þess að byggja upp fjölþætta atvinnustarfsemi í úthverfum. Samfélagsþróun svo sem mikil bílaeign og stórmarkaðsvæðing vinna gegn uppbyggingu verslunar og þjónustu innan íbúðarhverfa. Þá bendir reynslan til þess að byggingaraðilar séu oft mótfallnir því að byggja atvinnu- og/eða verslunarrými í nýjum blönduðum íbúðarhverfum og skipulagsyfirvöld láta undan þrýstingi og fella burtu skilmála um atvinnuhúsnæði í nýjum hverfum.

Author and committee

dc:creator, dc:contributor.*
Author dc:creator
  • Hlynur Torfi Torfason 1975-
Contributors dc:contributor
  • Landbúnaðarháskóli Íslands

Subjects

dc:subject × 3

Rights

Language dc:language.iso
is

Identifiers

dc:identifier.*
Handle dc:identifier.uri
http://hdl.handle.net/1946/13252
OAI identifier oai:identifier
oai:skemman.is:1946/13252

Chain of custody

source
Harvested from
Agricultural University of Iceland
Base URL
skemman.is/oai/request
Last updated
2026-07-27
Source record
OAI-PMH GetRecord
citation

Hlynur Torfi Torfason 1975-. Blöndun íbúðabyggðar og atvinnusvæða á höfuðborgarsvæðinu. Hugmyndafræði og skipulagsframkvæmd. 2012. http://hdl.handle.net/1946/13252