Back to results

Agricultural University of Iceland

Áhrif upphafsþéttleika lerkis á viðarvöxt og trjágæði

Abstract

dc:description.abstract

Verkefnið fjallar um áhrif mismunandi upphafsþéttleika (1000, 2000, 3500 og 5000 tré/ha) á ýmsa þætti sem varða afföll, vöxt, framleiðni, viðar- og trjágæði rússalerkis (Larix sukaczewii, kvæmi Imatra) sem gróðursett var vorið 2002 á fjórum stöðum upp eftir Fljótsdalshéraði (Litla-Steinsvaði í Hróarstungu, Hjartarstöðum í Eiðaþinghá, Mjóanesi í Skógum og Sturluflöt í Fljótsdal). Þessi tilraun var hluti af stærra verkefni sem kallast LTverkefnið. Markmið þessarar tilraunar var að búa til framtíðaraðstöðu til ýmissa skógræktarrannsókna með gróðursetningu stórra samfelldra rannsóknareita (0,5 ha) með mismunandi upphafsþéttleika lerkis á hverjum stað. Úttekt á rannsóknarreitum fór fram í ágúst 2011, þ.e. níu árum eftir gróðursetningu. Mældir voru þrír mælifletir innan hvers upphafsþéttleika á hverjum stað, alls 48 mælifletir. Eftirfarandi mælibreytur voru teknar út fyrir öll lifandi tré á flötunum: hæð, toppvöxtur, bolþvermál, þvermál sverustu greinar (mat á kvistum), sjáanlegt toppkal, auk einkunnar á bolgæðum og beitarskemmdum. Bolsýni voru tekin til ákvörðunar á viðarþéttleika í rannsóknastofu. Útreiknaðar breytur voru þéttleiki, hlutfall aukastofna, grunnflötur, afföll, standandi viðarrúmmál (m3/ha bolviðar) og meðalvaxtarhraði (m3/ha á ári). Helstu niðurstöður þessar verkefnis voru að upphafsþéttleiki hafði marktæk áhrif á yfirhæðarvöxt, standandi viðarrúmmál, meðalvaxtarhraða skógar og beitarskemmdir. Ekki reyndist vera marktækur munur á milli upphafsþéttleikaliða fyrir þvermálsvöxt á hvert tré, á viðarþéttleika trjánna og bolgæðum. Oftast var meiri munur á milli tilraunastaða en á milli mismunandi upphafsþéttleika á hverjum stað. Almennt var mestur vöxtur í Mjóanesi og Hjartarstöðum, en minni á Sturluflöt og Litla-Steinsvaði. Mikill munur var á milli Hjartarstaða og Litla-Steinsvaðs, en báðar jarðirnar eru utarlega á Héraði. Þetta sýnir vel að nærskilyrði á hverjum stað skipta höfuðmáli fyrir vöxt lerkis og því er varasamt að fullyrða um slík skilyrði fyrir stór samfelld landssvæði. Niðurstöðurnar gilda einungis fyrir upphafstig skógræktar. Því er ekki enn tímabært að segja til um hver lokaáhrif mismunandi upphafþéttleika verða á vöxt, framleiðni og trjágæði skógarins. Þessi rannsókn er því fyrsta skrefið í slíku mati og spennandi verður að fylgjast áfram með tilrauninni.

Author and committee

dc:creator, dc:contributor.*
Author dc:creator
  • Þórveig Jóhannsdóttir 1987-
Contributors dc:contributor
  • Landbúnaðarháskóli Íslands

Subjects

dc:subject × 5

Rights

Language dc:language.iso
is

Identifiers

dc:identifier.*
Handle dc:identifier.uri
http://hdl.handle.net/1946/13245
OAI identifier oai:identifier
oai:skemman.is:1946/13245

Chain of custody

source
Harvested from
Agricultural University of Iceland
Base URL
skemman.is/oai/request
Last updated
2026-07-27
Source record
OAI-PMH GetRecord
citation

Þórveig Jóhannsdóttir 1987-. Áhrif upphafsþéttleika lerkis á viðarvöxt og trjágæði. 2012. http://hdl.handle.net/1946/13245